143. löggjafarþing — 65. fundur,  19. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[16:44]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hæstv. utanríkisráðherra vill ekki fá svar frá Evrópusambandinu vegna þess að hann er andvígur aðild. Hann veit að Evrópusambandið mun bjóða Íslandi sérlausn í sjávarútvegsmálum. Fáir aðilar í heiminum hafa jafn víðtæka reynslu af alþjóðlegum samningaviðræðum og Evrópusambandið. Evrópusambandinu hefur lengi verið það fullkunnugt að Íslendingar munu aldrei gerast aðilar að sambandinu nema hafa yfirráð yfir fiskimiðum sínum. Evrópusambandið hefði aldrei hafið þá vegferð sem aðildarviðræður við Ísland eru nema vegna þess að þar hefðu menn fulla trú á því að þeir gætu lokið þeirri vegferð, að þeir gætu boðið Íslandi sérlausn í grundvallarhagsmunamálum Íslands sem Alþingi, ríkisstjórn og að lokum þjóðin sjálf mundi samþykkja. Þetta veit utanríkisráðherra og (Forseti hringir.) þetta er utanríkisráðherra hræddur við að komi í ljós (Forseti hringir.) ef við ljúkum aðildarviðræðunum og (Forseti hringir.) setjum þær í þjóðaratkvæðagreiðslu.