143. löggjafarþing — 65. fundur,  19. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[16:46]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsögu hans í málinu. Ég veit að það getur verið erfitt að skipta um hlutverk og fara úr stjórnarandstöðu yfir í ríkisstjórn, ég þekki líka af eigin í raun hvernig það er að fara úr ríkisstjórn í stjórnarandstöðu. Mér fannst hæstv. utanríkisráðherra aðeins detta inn í gamla hlutverkið sitt, vera ansi fókuseraður á fortíðina. Gott og vel. Ég hefði viljað heyra meira um framtíðarsýn í framsögu hans.

Það stakk mig samt illa þegar hæstv. utanríkisráðherra orðaði það svo, og þess vegna bað ég nú um þetta andsvar, að síðasta ríkisstjórn hefði hlaupið til Evrópusambandsins eftir björgun í stað þess að hefja verkið sjálf. Ég verð hreinlega að fá að inna hæstv. ráðherra eftir því hvort hann sé í alvöru að gefa í skyn að hér hafi ekkert verið unnið, að hér hafi ekkert verið gert, að hér hafi ekki verið tekið á ríkisfjármálunum, að hér hafi ekki verið tekið á atvinnuleysi, að hér hafi ekki verið unnið að því að reisa þjóðina við eftir hrun og að hér hafi bara verið hlaupið til Evrópusambandsins, því að það mátti lesa út úr orðum hæstv. ráðherra hér áðan. Ég treysti því að hann komi hér upp og leiðrétti þann skilning hjá mér.

Hitt sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, og ég mun koma að því í ræðu minni hér á eftir, er að ég hefði gjarnan viljað sjá ítarlegri pólitíska greiningu í þessari skýrslu. Í aðfaraorðum kemur fram að skýrslan hafi verið unnið að beiðni utanríkisráðuneytis og þar hafi verið tiltekin í viðaukum við þann samning þau efnisatriði sem sérstaklega var óskað umfjöllunar um. Ég spyr hvort sú beiðni sé aðgengileg og hvort ekki hafi verið ætlunin að biðja um aukna pólitíska greiningu á stöðunni í Evrópusambandinu í skýrslunni.