aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. En það má ekki gleyma þeirri vinnu sem hefur verið unnin. Ég vil minna á að ég nefndi hér áðan skýrslu nefndar Björns Bjarnasonar, fyrrverandi hæstv. ráðherra, sem var mjög góður grunnur og kom út á vori 2007. Ég vil líka minna á að í framhaldinu var skipuð nefnd af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, tvíhöfða nefnd leidd af þáverandi hv. þingmönnum Illuga Gunnarssyni og Ágústi Ólafi Ágústssyni þar sem ég átti sæti, sem vann auðvitað líka talsvert starf.
Það er því ekki hægt að segja að þessi skýrsla sé fyrsta skýrslan þó að hún sé viðbót við það sem þegar hefur verið unnið. Þá vil ég bara minna á að málið var búið að vera í töluverðri umræðu á þingi og innan þessara nefnda þar sem ég var svo heppin að fá að eiga sæti allt frá árinu 2004.