143. löggjafarþing — 65. fundur,  19. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[19:02]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Í ljósi síðustu orða þingmannsins langar mig að fá hann til þess að svara mér því hvernig hagsmunamat hans væri ef hugsanlegur samningur lægi hér á borðinu, í ljósi þeirra orða að það sé ekki atvinnulífið, þeir hagsmunir sem þar liggja, sem hv. þingmaður mundi hafa í huga heldur myntin og sú mynd.

Er það þannig að við getum horft fram hjá því að sjávarútvegur er grundvallaratvinnugrein íslensku þjóðarinnar? Umræða okkar um þetta stóra mál hlýtur að litast af þeirri staðreynd, þess vegna erum við að tala um sjávarútvegsmálin. Það kemur fram í skýrslunni, og var öllum ljóst áður en sú blessaða skýrsla kom út, að Evrópusambandið hefur þá meginreglu að viðkomandi ríki sem sækir um aðild gangi að öllu regluverki ESB óbreyttu. Það skýrist af því að meginreglan er sú að öll ríkin innan Evrópusambandsins eiga að vera jöfn. Það er Evrópusambandið, þannig lítur það út. Að halda því fram hér að Íslendingar séu það ólíkir öllum öðrum þjóðum sem gengið hafa þá braut að sækja um aðild að Evrópusambandinu er ansi stór fullyrðing.

Við erum með dæmi, réttilega, um þjóðir sem hafa reynt að fá undanþágur. Noregur reyndi að fá undanþágur út af sjávarútveginum. Það gekk ekki. Síðan vísaði þingmaðurinn í tvö dæmi, annars vegar um heimskautalandbúnað. Það er alveg dæmi um að ESB breyti reglum sínum í þágu einstakra aðildarríkja í þeim tilgangi að halda þessum svæðum í byggð. Þar vorum við ekki með gríðarlega sterka atvinnugrein eins og við horfum á á Íslandi, með auðlind sem aðrar þjóðir innan Evrópusambandsins vilja komast í. Við sjáum hvernig samskiptum okkar hefur verið háttað við Evrópusambandið út af makríl og við sjáum hvernig þeir koma fram við okkar bestu frændur, Færeyinga, vegna síldarinnar.

Hvernig getur hv. þingmaður líkt þessari (Forseti hringir.) tilteknu breytingu Evrópusambandsins í þágu ríkjanna í heimskautalandbúnaði við okkar stóru mál varðandi sjávarútveginn?