aðgerðir og biðlistar í heilbrigðiskerfinu.
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að koma hingað upp og gefa í skyn að von sé á svari fljótlega við skriflegri fyrirspurn. En ástæða þess að ég ýti á eftir þessu er sú að til mín hafa leitað konur sem hafa þurft að bíða í langan tíma eftir aðgerðum í Reykjavík en hafa síðan fengið utanaðkomandi upplýsingar um að biðtíminn sé styttri á öðrum heilbrigðisstofnunum. Þeim hefur verið mjög létt í því samhengi vegna þess að það er ekkert auðvelt að bíða eftir þessum aðgerðum eða nokkrum öðrum ef mögulegt er að komast fyrr að annars staðar.