aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Herra forseti. Hv. þm. Birgitta Jónsdóttir þarf ekki að kenna mér neitt um þjóðaratkvæðagreiðslur. Ég lagði fram mína fyrstu tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu og breytingar á stjórnarskrá í þá veru áður en ég held að hv. þm. Birgitta Jónsdóttir hafi vitað hvar Alþingishúsið er. Það er svo langt síðan. Ég hef barist fyrir því í hátt á þriðja áratug, hér í þessum sölum. Ég hef sömuleiðis stutt tillögur frá henni í þá veru og átti meðal annars minn þátt í því að samstaða tókst um það innan þáverandi stjórnarliðs að sett var löggjöf að hennar frumkvæði um hvernig bæri að haga slíkum þjóðaratkvæðagreiðslum.
Ástríðufólk og baráttufólk sem hefur sannfæringu og trú á málstað verður að hafa þolgæði og úthald. Það þýðir ekki að koma í ræðustól og kvarta og kveina yfir því að landsfeðurnir eða landsmæðurnar láti ekki að vilja manns. Þeir sem ætla að ná einhverju fram verða að berjast fyrir því dag og nótt, (Gripið fram í.) í vökunni, í draumunum og líka í ljóðinu.
Mér brá satt að segja þegar hv. þingmaður kom hér eins og hún væri í hreinni uppgjöf, væri orðin hundleið á málinu og vildi fara að ræða einhver önnur mál. Á að láta stjórnarherrana komast upp með að þvæla mikilvægum málum, eins og stjórnarskrá, eins og aðild að Evrópusambandinu, eins og hverju öðru sem mönnum kemur til hugar, út af borðinu? (Gripið fram í.) Hvers virði er stjórnarandstaða sem bregst þannig við? Hún er einskis virði.
Ég vil ekki taka þátt í slíkri stjórnarandstöðu. Ég tel að hlutverk okkar sé merkilegt. Við eigum að berjast fyrir sannfæringu okkar. Við eigum að veita ríkisstjórninni heilbrigt aðhald. Það er óheilbrigt aðhald ef við komum hérna og kvörtum og kveinum yfir því að það sé svo erfitt að aka eða draga hæstv. ráðherra til réttar að menn vilji hætta í málinu.
Ég spyr hv. þingmann aftur: Telur hún að ekki eigi að koma fram því loforði sem hæstv. fjármálaráðherra lýsti mörgum sinnum yfir, bæði fyrir og eftir kosningar, að þjóðin eigi sjálf að fá að velja framhald viðræðna?