143. löggjafarþing — 66. fundur,  20. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[12:03]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta var gott andsvar að því leyti að hún tók það fram að hérna væri verið að draga fram ólík sjónarmið í málinu og velta fyrir sér bæði kostum og göllum. Ég er ekki í þessari umræðu til að fela einhverjar staðreyndir, það eru auðvitað ríki sem hafa fengið tímabundnar undanþágur og mjög mörg hafa fengið tímabundnar undanþágur.

Ég fór yfir það í ræðu minni hvernig það er rökstutt. Það er tímabundið til þess að stuðla að því að af aðildinni verði. Það kemur hérna fram: Þar sem alvarlegir erfiðleikar steðjuðu að aðild mætti framkvæmdastjórnin heimila ákveðnum þjóðum að fá aðlögun á einhverjum köflum, eins og gert var varðandi heimskautalandbúnaðinn. Það var gert til þess að laga landið að þeirri hugmynd að þetta væri í lagi.

Það hversu mikilvægur sjávarútvegurinn er á Íslandi er alveg rétt, það er okkar sérstaða. En við erum með dæmi á borðinu, eins og ég fór í gegnum í ræðu minni, um þjóð þar sem sjávarútvegur er líka mikilvægur. Það er Noregur sem fór í gegnum samningaviðræður við Evrópusambandið og það var viðurkennt af hálfu Evrópusambandsins: Já, sjávarútvegur er mikilvægur fyrir Noreg. Já, sjávarútvegur er grundvallaratvinnugrein fyrir þau svæði sem verið var að reyna að fá varanlega undanþágu um. Það var þannig, það var viðurkennt af hálfu Evrópusambandsins. Engu að síður var ekki fallist á að rétt væri að veita undanþágu frá stefnu sambandsins.

Þá getur maður dregið þá ályktun, eins og gert er hér í skýrslunni, að sú meginregla sambandsins að viðkomandi umsóknarríki gangi að öllu regluverki þess óbreyttu hafi verið látin gilda. Það er einfaldlega ályktunin sem ég verð að draga vegna þess að leikreglurnar eiga að vera þær sömu fyrir alla og sérstaklega þegar um er að ræða málaflokka þar sem tekin hefur verið upp sameiginleg stefna. Þetta er sérstaklega talið gilda um þá og þá erum við að tala um landbúnað og sjávarútveg.