aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Hæstv. forseti. Fyrst um Noreg. Það var viðurkennt, og það kemur fram í viðauka III á bls. 149 að þau sjónarmið hafi verið viðurkennd, af hálfu Evrópusambandsins að Norðmenn byggðu kröfu sína á því að sjávarútvegsafurðir væru í fyrsta lagi mikilvæg útflutningsvara og í öðru lagi að sjávarútvegur hefði afgerandi þýðingu fyrir búsetu og atvinnustarfsemi á strandsvæðum Noregs. Það er það sem skiptir máli, þetta er algjörlega sambærilegt við okkur, fyllilega sambærilegt við Ísland vegna þess að sjávarútvegur hefur afgerandi þýðingu fyrir búsetu og atvinnustarfsemi á Íslandi.
Þetta er fullkomlega sambærilegt og Norðmenn fengu einfaldlega nei. Ástæðan fyrir því að ég er á þeirri skoðun að við eigum ekki að halda áfram í þessu ferli er sú sem ég hef rakið hér, að við fórum af stað í þessar viðræður á röngum forsendum, stóðum veikum fótum. Það stenst ekki nokkra skoðun að fara í slíkan leiðangur án þess að vera nægilega undirbúinn, án þess að vera með bakland, sérstaklega í ríkisstjórninni en ekki síður í þeim málefnaáherslum (Forseti hringir.) sem leggja átti fram í viðræðunum.