aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Hæstv. forseti. Ég rakti það í andsvörum við annan hv. þingmann fyrr í dag að afstaða manna til Evrópusambandsaðildar getur byggst á mismunandi þáttum. Sumir hafa þegar komist að þeirri niðurstöðu, miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir og óumdeildar eru um Evrópusambandið og eðli þess og hvað í því felst að vera aðilar að Evrópusambandinu, að þeir vilji ekki gerast aðilar. Ég er í þeim hópi. Þess vegna var ég andvígur umsókninni sem send var inn sumarið 2009.
Ég er afdráttarlaus í því að ég tel að við eigum ekki að halda áfram á þessari leið. Það er afdráttarlaust mín skoðun og hefur verið í gegnumgangandi allan þann tíma sem ég hef komið að þessum málum. Aðrir geta verið þeirrar skoðunar að nægilega mikið sé vitað um kosti Evrópusambandsins til að Evrópusambandsaðild hljóti að vera æskilegt markmið. Svo eru einhverjir, og sennilega nokkuð margir jafnvel hér í þessum sal, þeirrar skoðunar að Evrópusambandið sé æskilegt markmið en hins vegar þurfi einhverjar sérlausnir til að Ísland geti orðið aðili. Allt eru þetta að mínu mati virðingarverð sjónarmið.
Við þurfum hins vegar, þegar við veltum fyrir okkur einstökum spurningum eins og í þessu sambandi, að taka ákvarðanir byggðar á þeim upplýsingum sem fyrir liggja og rökréttu mati á þeim. Þessi skýrsla svarar ekki öllum spurningum en hún leggur okkur hins vegar til efnivið sem við getum dregið ályktanir af. Hv. þm. Guðbjartur Hannesson vitnar til forsögu varðandi Icesave og sjálfsagt á það líka við um fleiri mál; auðvitað eru menn að taka ákvarðanir á þingi oft og tíðum um hluti sem eru háðir óvissu. Jafnvel þó að við gengjum í Evrópusambandið mundum við ekki vera búnir að eyða allri óvissu, það væri alltaf óvissa um hver framtíðarþróun sambandsins yrði. Alltaf og í öllum kringumstæðum verða menn því að taka afstöðu sem tekur tillit til einhverrar óvissu en menn hljóta að komast að einhverri niðurstöðu á grundvelli þeirra röksemda sem liggja fyrir. Og þessi skýrsla hjálpar okkur að mínu mati til að gera það.