stjórnartillaga um slit aðildarviðræðna við ESB.
Hæstv. forseti. Ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að fara í stjórnmál er sú að ég vildi breyta þeim. Nánast alveg síðan við byrjuðum þing í haust og líka á sumarþingi hef ég reynt að vera jákvæður, uppbyggilegur, hvetja til samvinnu og sátta — og í dag finnst mér ég hafa verið illilega svikinn af ríkisstjórninni.
Á síðasta kjörtímabili, þar er af mörgu að taka, fannst mér landsdómsmálið eitt það ömurlegasta sem hefur gerst á Íslandi. Það skapaði óróa og sundurlyndi hjá þjóðinni. Nákvæmlega það sama er að gerast núna. Ég bið ykkur að ímynda ykkur ef hæstv. utanríkisráðherra hefði lagt fram þingsályktunartillögu á föstudaginn um þjóðaratkvæðagreiðslu samhliða sveitarstjórnarkosningum um áframhald aðildarviðræðna. Hugsið ykkur hvernig mórallinn væri í samfélaginu í dag, hvað við værum öll brosandi og kát í staðinn fyrir þetta sem er að gerast hérna úti.
Við erum búin að kalla fólkið aftur út á Austurvöll. Þetta er ömurlegur dagur.