143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar.

[16:41]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Herra forseti. Ég hef margoft farið yfir það hér í ræðustól og í ræðum á opinberum vettvangi að ég tel hagsmunum okkar best borgið utan Evrópusambandsins. (Gripið fram í.) Það er réttlætingin fyrir þessu. Það byggir líka á því að koma heiðarlega fram og hreint fram gagnvart viðmælendum okkar en leitast ekki eftir inngöngu í samband þegar enginn pólitískur stuðningur er við málið hér á Alþingi eftir niðurstöðu kosninganna þar sem hv. þingmaður í forustu fyrir flokk sinn galt afhroð með Evrópustefnuna að leiðarljósi. Við hljótum að taka með okkur einhver skilaboð frá þeim niðurstöðum sem fengust í síðustu þingkosningum. (ÁPÁ: … sem þú varst búinn að lofa …)

Hv. þingmaður kom fram með spurningu áðan og fullyrti um leið að ég hefði neitað því að við Íslendingar ættum að uppfylla Maastricht-skilyrðin, sem er rangt, ég hef aldrei neitað því að það væri skynsamlegt. Spurningin snýst um það hvernig við eigum að vinna okkur inn á veg til betri lífskjara í framtíðinni. Um það mun m.a. frumvarp um opinber fjármál fjalla sem ég (Forseti hringir.) hyggst kynna fyrir þinginu á næstu dögum, þar sem við ræðum um hvernig við náum betri tökum á opinberum fjármálum á Íslandi án þess (Forseti hringir.) að ganga í myntsamstarf við aðrar þjóðir. (Gripið fram í.)