þingleg meðferð mála frá utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Mér finnst það mjög merkilegt að í rauninni ákveður meiri hlutinn hvenær minni hlutinn á að tala. Ég heyrði að það var kallað eftir því að forseti mundi gera grein fyrir af hverju það þyrfti að halda kvöldfund vegna þess að stjórnarfrumvörpin hafa ekki beinlínis verið að velta inn í þingið. Það þvælist ekkert fyrir mér að vinna hér að kvöldi til en ég man ekki eftir að þetta hafi verið útskýrt.
Þeir sem eru á mælendaskrá eru að mestu leyti úr minni hlutanum. Ég býst við að meiri hlutinn sé þá bara í kaffi eða að fá sér eitthvað að borða því að það var meiri hlutinn sem kallaði eftir því að umræða færi fram í kvöld og þeir hljóta þá að láta sjá sig í þingsal.