143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

þingleg meðferð mála frá utanríkisráðherra.

[17:33]
Horfa

Björt Ólafsdóttir (Bf):

Herra forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmönnum Valgerði Bjarnadóttur og Steingrími J. Sigfússyni og hvet forseta til þess að funda með þingflokksformönnum svo við höfum það betur á hreinu hvernig dagskráin verður í framhaldinu.

Við sjáum að þetta ruglar þingið mjög mikið og þá sem halda að þeir séu að koma hérna eftir skamma stund til að ræða þessa skýrslu en svo væntanlega þá þingsályktunartillögu sem liggur fyrir frá hæstv. utanríkisráðherra. Ég held að þetta þurfi að komast á hreint áður en við höldum áfram.