þingleg meðferð mála frá utanríkisráðherra.
Hæstv. forseti. Ég verð að viðurkenna að ég skil ekki alveg þessa umræðu um fundarstjórn forseta. Það liggur fyrir að þingsályktunartillagan er ekki á dagskrá núna. Það á að ræða þessa skýrslu í kvöld og væntanlega eitthvað áfram þangað til því er lokið. Við gerum ráð fyrir því að þingsályktunartillagan fái sína venjulegu þinglegu meðferð þannig að ég átta mig ekki alveg á öllum þessum óróa kringum þetta núna og umræðu um störf þingsins.
Látum þetta bara ganga sinn gang. Við getum síðan deilt um hvort það sé skynsamleg ályktun eða ekki og allt um efni málsins. En þetta er komið í eðlilegan farveg eins og það er þannig að það er óþarfi að ræða þetta meira akkúrat núna.