aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Herra forseti. Þá er það á hreinu að einn hv. þingmaður Vinstri grænna vill að Ísland verði aðili að Evrópusambandinu ef nægilega góðir samningar nást, þ.e. að 300 þús. manna þjóð verði hluti af 550 milljóna manna ríki. Evrópusambandið breytist mjög hratt. Það hefur breyst alveg óskaplega á síðustu 60 árum frá stofnun þess, miklu hraðar en ég átti nokkurn tímann von á.
Þá verður næsta spurning: Segjum að Evrópusambandið breytist, haldi áfram að breytast og verði ríki eins og stefnir í og eftir 25 ár, skulum við segja, breyti það þeim varanlegu atriðum sem búið var að semja um. Hvað mundu hv. þingmenn þá geta sagt við börn sín og barnabörn?