aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég held að það hafi verið hagfræðingurinn John Maynard Keynes sem eitt sinn var spurður um mál sem hann hafði skipt um skoðun á, hvernig á því stæði að hann hefði skipt um skoðun. Svar hans var þetta: Herra minn, þegar staðreyndir breytast þá skipti ég um skoðun. Hvað með yður?
Þannig var að fyrir nokkrum árum harðneituðu þeir sem töldu rétt að sækja um aðild að Evrópusambandinu því að það væri að færast í átt til aukins sambandsríkis. Því var harðlega neitað og mörg dæmi þar um. Nú er sagt, (Gripið fram í.) virðulegi forseti, að af því að Evrópusambandið sé alltaf að breytast þá þýði ekkert annað en að láta sig hafa það og stökkva út í.
Ég held reyndar að evrukrísan hafi sýnt það, hafi menn haft efasemdir um þetta mál, að það er svo augljóst að til að evran geti sinnt hlutverki sínu, sem við skulum svo sannarlega vona að hún geri, þá þurfi það til að auka samruna evruríkjanna á mjög mörgum sviðum og fyrst og síðast á sviði ríkisfjármála. Með öðrum orðum þarf að færa sambandið, þ.e. evruríkin, í átt til aukins sambandsríkis. Þetta hefur komið fram mjög berlega á undanförnum árum.
Hvað varðar aðra þætti sem ég var spurður að hér, varðandi niðurstöðu þingsályktunartillögu, sem hefur verið dreift: Við skulum bara ræða það, virðulegi forseti, þegar að því kemur, af því að sú umræða mun fara fram. Ég vil þó segja þetta: Það þarf engum að koma á óvart í sjálfu sér sú afstaða þessara flokka, í ljósi reynslu (Forseti hringir.) undanfarinna fjögurra ára, um hvað (Forseti hringir.) beri að gera í þessari stöðu.