143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[19:01]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Fyrst um þá spurningu hvort ég teldi að staða Íslands í EES-samstarfinu væri í hættu eða EES-samstarfið yfir höfuð. Það væri auðvitað alveg fráleitt. Það að ríki sem sótt hefur um aðild taki ákvörðun um að draga aðildarumsókn sína til baka hafi einhvers konar refsiáhrif af hálfu ESB hvað varðar EES-samstarfið tel ég fráleitt, enda er ekki bara Ísland í EES-samstarfinu, það eru önnur ríki, þannig að ég hef engar áhyggjur af því.

Ástæðan fyrir því að ég svaraði eins og ég gerði áðan fyrirspurn hv. þingmanns er að þegar að því kemur að við ræðum um þá þingsályktunartillögu sem hér hefur verið dreift og fáum rökstuðning fyrir henni þá gerum við það. Það sem ég er að ræða í þessari umræðu er sjálf skýrsla Hagfræðistofnunar. (KaJúl: Þetta er útúrsnúningur.)Virðulegi forseti, hér er kallað: Þetta er útúrsnúningur. Nei, það er það ekki. (Gripið fram í: Jú.) Það kann að vera að þingmanninum líki ekki svarið en það sem ég er að segja er að það sem skiptir máli fyrir okkur núna er umræða um þessa skýrslu, hvaða afstöðu við tökum til hennar, (KaJúl: Þetta er ekki erfið spurning.)

Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Hér er kallað fram í að þetta sé ekki erfið spurning, það er alveg hárrétt og það er ekkert (Forseti hringir.) erfitt að svara þessu. En ég er bara að halda mig við þingsköp, (Forseti hringir.) sem snúa að umræðu um þetta þingskjal. (Gripið fram í.)(Forseti hringir.) Hv. þingmaður verður auðvitað að þola það að ég fylgi því.(Gripið fram í: … skýrsluna.)