aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Vegna síðustu orða hv. þingmanns velti ég fyrir mér hvaða orð hún hefði valið um þann stjórnmálaflokk og þá stjórnmálamenn sem fyrir kosningarnar 2009 kynntu sig sem helstu andstæðinga þess að Ísland gengi í Evrópusambandið. (Gripið fram í.) Árið 2009 kom. (Gripið fram í.) Ég hef áhuga á að vita hvaða einkunn hv. þingmaður mundi gefa þeim stjórnmálamönnum sem fyrir þær kosningar (BP: Svaraðu spurningunni, Illugi.) fóru um landið.
Virðulegi forseti. Ég mun gera það en ég mun gera það á minn hátt.
Þeir fóru um landið og sögðust aldrei ætla að ganga í ESB og örfáum mánuðum síðar voru þeir búnir að greiða atkvæði með því að sækja um aðild. Setti stjórnmálastéttina þá niður eða þá stjórnmálamenn sem sögðu að þeir mundu aldrei fara í samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn en gerðu það síðan skömmu síðar?
Hvað varðar gjaldeyrismálin nefndi hv. þingmaður að með því að taka upp evru eða ganga í Evrópusambandið væri hægt að leysa gjaldeyrishöftin. Ég hefði áhuga á að heyra frá hv. þingmanni hvernig það mundi gerast. Er hv. þingmaður að ýja að því að Evrópusambandið muni greiða upp þær skuldir sem hvíla reyndar á einkaaðilum hér á Íslandi en valda því að við getum ekki haft gengið frjálst? Að það verði einhvers konar, svo ég sletti á ensku, „bail-out“ af hálfu Evrópusambandsins? Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að það geti gerst? Evrópusambandið hefur sjálft sagt og stækkunarstjóri þess nefndi að það væri vissulega til í að hjálpa okkur Íslendingum með sérfræðiþekkingu. Það er ekki okkar vandamál að kalla það inn en Evrópusambandið er ekkert að fara að leysa fyrir okkur gjaldeyrishöftin. Það þarf að leysa þau áður en menn fara inn og við getum rætt síðar hvernig það gerist.
Virðulegi forseti. Hvað varðar krónuna þá sé ég krónuna fyrir mér sem þá mynt sem við munum vera með hér til langrar framtíðar. Ég sé ekki lausn í evrunni vegna þeirra þátta sem ég ræddi áðan og fór yfir í ræðu minni.