aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ástæðan fyrir að ég bryddaði upp á þeim atburðum sem urðu hér 2009 var ekki af einhverri gamansemi eða til að reyna að komast hjá spurningunni. Ég var einfaldlega að fiska eftir því hvort það væri samfella í þeim málflutningi sem var hafður uppi um að stjórnmálastéttina hefði sett niður við þessa ákvörðun hér.
Ég er ekki þeirrar skoðunar. Ég lýsti því áðan í andsvari hvers vegna ég teldi að ákvörðunin væri tekin og hver væru rökin þar fyrir. Hitt er reyndar nauðsynlegt líka fyrir alla stjórnmálaumræðu að hafa söguna með. Það er ekki gott að vera sögulaus, virðulegur forseti, það er nauðsynlegt að læra af reynslunni og hafa það í huga.
Ég skal gæta þess að vera ekki að ofbjóða hv. þingmanni með tali um liðna tíð eða aðra stjórnmálaflokka og reyna að snúa mér frekar að spurningunni um krónuna, hvort ég sjái hana fyrir mér sem framtíðargjaldmiðil. Já, ég geri það. Í höftum eða ekki í höftum? Ég sé fyrir mér og hef sannfæringu fyrir því að við munum geta leyst haftavandamálið.
Ég spurði hv. þingmann hvers vegna hv. þingmaður væri þeirrar skoðunar að ESB (Forseti hringir.) og innganga í ESB geti einhvern veginn leyst höftin. Ég hef mikinn áhuga á að heyra svarið af því að ég skil ekki alveg hvernig það á að gerast nema auðvitað maður reikni með því að ESB ætli sér að borga þær einkaskuldir sem um er að ræða.