aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Herra forseti. Varðandi fyrri spurningu hv. þingmanns þá veit ég að hann hefur ekki fylgst gjörla með þingstörfum á síðasta kjörtímabili, en ég var ein í þeim fimm manna hópi sem greiddi atkvæði gegn aðildarumsókninni og greiddi atkvæði með tillögu hæstv fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssonar, um að bera ætti þetta undir þjóðina, svo að það sé sagt, þ.e. ég er sjálfri mér samkvæm.
Varðandi seinni spurninguna þá er það þannig að ef við erum fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðslum og viljum taka mark á þeim þá hljótum við að taka mark á niðurstöðunum og treysta okkur til að vinna úr þeim. Annars færum við ekki út í að spyrja þjóðina ef við vildum einungis fá ákveðið svar. Það hlýtur að vera til einhvers lagt upp í að spyrja heila þjóð að því hvað hún vilji með ákveðin mál, annars gætum við bara haft þetta hjá okkur án þess að hafa fyrir því að spyrja þjóðina, þ.e. ef við ætluðum ekki að taka neitt mark á niðurstöðunum.
Ég segi fyrir mína parta og minn flokk að við hefðum treyst okkur fullkomlega, eins og við gerðum á síðasta kjörtímabili, verandi andvíg inngöngu í ESB, til að vinna faglega að þessum málum. Ég veit ekki hvort Sjálfstæðisflokkurinn treystir sér til að vinna faglega að þessum málum ef þjóðin kæmist að þeirri niðurstöðu að hún vildi ljúka viðræðum. En þá er bara sá munur á mínum flokki og flokki hv. þingmanns að menn treysta sér ekki til að vinna faglega í umboði þjóðarinnar. Hv. þingmaður verður að eiga það við sig og sinn flokk hve vel hann treystir honum til að vinna faglega að málum með hagsmuni þjóðarinnar í huga.