143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[20:20]
Horfa

Brynjar Níelsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Kann það að vera að hægt hafi gengið og kannski ekkert í aðildarviðræðunum á síðasta kjörtímabili vegna þess að margir þingmenn í stjórnarliðinu voru andvígir inngöngu? Getur það verið skýringin? Og eigum við þá að fara að endurtaka þann leik að halda áfram viðræðum hjá stjórnvöldum sem ekki hafa áhuga á að fara inn? Munu þær einhvern tíma ganga, telur þingmaðurinn að það muni ganga úr því að það gekk ekki með helming af stjórnarliðinu síðast? Halda menn að það mundi ganga með engan í stjórnarliðinu? (Gripið fram í.)

Það sem skiptir máli, það sem við vitum öll að afstaða þjóðarinnar mun ráðast af, hefur ekki verið klárað. Ég trúi því ekki að umboð núverandi ríkisstjórnar (Forseti hringir.) til að gera þetta muni takast þegar enginn er sammála því úr því að það tókst ekki þegar helmingurinn var sammála því síðast.