aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Hæstv. forseti. Eitt aðalmál Samfylkingarinnar í kosningunum 2009 var að sækja ætti um aðild að Evrópusambandinu. Það var hins vegar alltaf alveg ljóst í þeim málflutningi öllum að Ísland mundi aldrei ganga í Evrópusambandið án þess að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu, það var alveg ljóst.
Ég var þeirrar skoðunar þá að það ætti að klára samninga og síðan færi það í þjóðaratkvæðagreiðslu. En við þurfum líka að athuga að það er ekkert endilega nauðsynlegt, breyta þarf stjórnarskránni, en það þarf ekki að bera þetta undir í þjóðaratkvæðagreiðslu. Við sögðum það hins vegar öll sem mæltum fyrir þessu að enginn vafi væri á því í okkar huga að við mundum leggja til að samningur færi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það yrði aldrei gengið þangað inn án þess að það væri gert.
Mér finnst — það er erfitt að segja — ólíklegt að ég mundi haga mér öðruvísi í dag.