143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[21:09]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er engin launung á því að ég er hlynnt því að við klárum aðildarviðræður Evrópusambandsins. Ég trúi því staðfastlega að við náum samningi sem við getum unað við og vil ég ekki fórna miklu í því sambandi.

Það er kannski léttúðlegt að taka mið af fasteignakaupum. Ég mundi segja að það gilti um hvaða samning sem við gerum, þegar fólk byrjar að gera samning er það hvort á sínum staðnum og síðan er spurning hvort það nái saman. Það gildir um fasteignakaup, meira að segja um það þegar fólk giftist. Þá þarf það að finna út hvort það nái einhverri sameiginlegri niðurstöðu. Það er samningur sem á að endast sem lengst.

En hv. þingmaður heldur áfram með samlíkinguna, þá get ég kannski svarað þessu eitthvað skilmerkilegar.