143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[21:16]
Horfa

utanríkisráðherra (Gunnar Bragi Sveinsson) (F) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég get fullvissað hv. þingmann um að utanríkisráðherra hefur setið hér í húsinu, frammi í matsal og niðri í þingflokksherbergi, og hlustað á það tilbrigði við málþóf sem hér fer fram af hálfu stjórnarandstöðunnar.