aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Hæstv. forseti. Sú skýrsla sem hér er til umfjöllunar er stór og viðamikil. Í hinu prentaða þingskjali sem við getum fengið hér í hliðarherbergjum er hún um 150 blaðsíður, en mér hefur verið sagt að annars staðar liggi einhvers staðar um 750 blaðsíður af ítarefni sem við eigum að fara yfir.
Ég get ekki annað en tekið undir með hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni sem gerði hér að umtalsefni í dag að okkur þingmönnum hafi verið ætlaður tæpur einn sólarhringur til að fara yfir þessa skýrslu til að vera klár í þá umræðu sem nú stendur yfir. Mér finnst persónulega ekkert óeðlilegt við að stjórnarflokkarnir fundi að kvöldi til að menn fái kynningu á þeirri skýrslu sem lögð er fram en ég geri miklar athugasemdir við það að strax daginn eftir, áður en aðrir þingmenn fá þessa skýrslu í hendur birti Morgunblaðið að morgni flennifyrirsögn á forsíðu þar sem vitnað er í skýrsluna. Og skömmu síðar, eftir að búið er að bera út Morgunblaðið þennan morguninn kemur hv. þm. Vigdís Hauksdóttir í ljósvakamiðla og byrjar að tala um þessa skýrslu. Skýrslunni var lekið af einhverjum stjórnarþingmönnum.
Nú er mikið rætt um leka á gögnum. Þetta dæmi er stjórnarsinnum til vansa, þ.e. hvernig með þetta mál var farið. Það er mikið rætt um að auka virðingu Alþingis. Virðulegi forseti. Þetta er ekki skref í þá átt. Ég tek það skýrt fram að mér finnst ekkert óeðlilegt við það að stjórnarmeirihluti ræði mál á undan minni hluta en menn eiga að sitja við sama borð varðandi það að fá gögnin. Það gengur ekki, eins og hér hefur komið fram, að menn eigi að vera tilbúnir til að ræða þessa skýrslu og fái til þess 15 mínútur. Ein af spurningum mínum til hæstv. utanríkisráðherra varðar það mál, ef hann mundi veita því athygli og hlusta á það sem ég ætla að spyrja um. Mér finnst ekkert óeðlilegt að hæstv. utanríkisráðherra þurfi mikið að ræða við aðstoðarmenn sína en ég geri kröfu til þess að hann sýni þinginu þá virðingu að þegar þingmenn eru í ræðustól að hann hlusti á þá, ég tala nú ekki um þegar spurningar eru lagðar fyrir.
Væri hægt að trufla utanríkisráðherra með því að fá hann hingað í salinn án aðstoðarmanna? Það er kannski bara eðlilegt, kannski á ég ekkert að vera að fara fram á að hæstv. utanríkisráðherra sé viðstaddur þessa umræðu. Ég hugleiddi hvort ég ætti að óska eftir að utanríkisráðherra yrði bara ekkert á svæðinu. Það væri í takt við annað varðandi þessa skýrslu og þá lýsingu hæstv. ráðherra í gær að efnislegri umræðu á Alþingi um skýrsluna væri lokið og þess vegna gæti hann lagt fram þá tillögu sem ég kallaði hrákasmíð í dag og ætla að endurtaka enn einu sinni að er hrákasmíð og ekki þingtæk.
Ég ætla að spyrja hæstv. utanríkisráðherra um hvort það hafi verið ætlun hans í upphafi að skýrslan fengi bara umræðu í nokkra daga og að síðan væri umræðu lokið, með öðrum orðum að skýrslan gengi ekki til nefndar og kæmi svo aftur til þings eins og gert hefur verið við tvær skýrslur á þessu þingi. Það er mín fyrsta spurning til hæstv. ráðherra. Þessi skýrsla er að mínu mati ein besta lýsing og besta gagn sem komið hefur fram núna síðustu mánuði sem styður að aðildarviðræðum við Evrópusambandið skuli haldið áfram og samningur lagður fyrir þjóðina. Hér eru settar fram margar spurningar; hvað gerist ef … o.s.frv. Það fæst aldrei svar við því nema þeirra spurninga sé spurt og við fáum svar við þeim og að lokum er kafla lokað og næsti kafli tekinn og skoðaður. Þegar búið er að fara í gegnum alla þættina er tilbúinn samningur til að leggja fyrir þjóðina til samþykktar eða synjunar.
Ég hef áður sagt það úr ræðustól Alþingis að Alþingi eigi í framhaldi af því að veita þeim sem vilja samþykkja og þeim sem eru andvígir jafnmikla peninga úr ríkissjóði til að standa undir kynningu og fundaferð um allt land og fara í gegnum samninginn. Það er lýðræði. Að lokum verður svo þessi samningur borinn undir þjóðina til samþykktar eða synjunar.
Ég hef sagt og skal segja það einu sinn enn að það að ganga í Evrópusambandið eru ekki trúarbrögð hjá mér. Ég hef sett fyrirvara um ákveðna kafla sem ég vil sjá samningsdrög að þannig að ég, þingmaður Samfylkingarinnar sem stóð einnig að samþykktinni 2009, geti tekið endanlega ákvörðun með mínu eina atkvæði og sagt já eða nei við samningnum. Og það eru nokkrir þættir þar sem eru algerlega heilög vé fyrir mér. Við þeim spurningum sem ég hef í því sambandi fæ ég aldrei svar við nema samningur sé kláraður. Þess vegna segi ég að sú skýrsla sem ráðherra leggur fram er besta staðfestingin á því að við þurfum að halda áfram viðræðunum, vanda okkur, ná samningi, setja pening til já-manna og nei-manna, kynna samninginn fyrir þjóðinni og ganga til atkvæða.
Skoðanakannanir segja í dag að meiri hluti þjóðarinnar sé andvígur aðild að Evrópusambandinu. Þá er það lýðræðisleg niðurstaða sem ég mun auðvitað virða og sætta mig við. Þá næst líka annað, virðulegi forseti, það er það að þessu deilumáli verður þá lokið eftir 10, 15, 20 ár eins og gerðist í Noregi. Ef þessi ósvinna með þessari hrákasmíð hæstv. utanríkisráðherra verður samþykkt þá verða hér logandi deilur um Evrópusambandið, um kosti þess og galla, næstu 10–15 ár og ef það er eitthvað sem okkur Íslendinga vantar ekki þá er það deiluefni, eitthvað til að rífast um. Þess vegna er það alveg með ólíkindum að Heimssýn skuli vera leiðtogi lífsins í utanríkismálum hjá núverandi hæstv. ríkisstjórn.
Virðulegi forseti. Er eitthvert svar um hvort hæstv. fjármálaráðherra sé væntanlegur? Ég bað um það áðan og ég hef ekki enn þá fengið svar um hvort hæstv. fjármálaráðherra er að koma eða ekki.
(Forseti (EKG): Forseti getur ekki svarað þessari spurningu.)
Ég mundi vilja óska eftir því að hæstv. forseti gengi úr skugga um það með aðstoðarmönnum sínum við forsetaborðið hvort hæstv. fjármálaráðherra sé á leiðinni. Ég hef enn þá hæstv. utanríkisráðherra hér í hliðarherbergi, vegna þess að nú kem ég að því sem ég vildi ræða um við framsóknarmenn, þá einn eða tvo framsóknarmenn sem eru hér í salnum í kvöld og standa vaktina en þegja þunnu hljóði líkt og þeir gerðu í dag.
Virðulegi forseti. Ég ætla að spyrja hæstv. utanríkisráðherra sem aðalframsóknarmanninn hér í kvöld út í ályktun 30. flokksþings framsóknarmanna í janúar 2009. Hvað meintu framsóknarmenn með þeirri samþykkt? Með leyfi forseta ætla ég að lesa þá samþykkt:
„Ályktun um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Markmið.“
Og til að fyrirbyggja allan misskilning þá er ég ekki að lesa upp úr samþykkt landsfundar Samfylkingarinnar. Þetta er landsfundur framsóknarmanna sem hafa B sem listabókstaf.
Með leyfi forseta:
„Að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á grundvelli samningsumboðs frá Alþingi sem tryggi hagsmuni almennings og atvinnulífs og þá sérstaklega sjávarútvegs og landbúnaðar.“
Ég get alveg skrifað upp á það. Þetta eru þeir kaflar sem ég hef fyrirvara um og bíð spenntur eftir að sjá hvað okkur býðst þar.
Hér segir einnig, með leyfi forseta:
„Þá er fullveldi og óskorað forræði Íslendinga yfir auðlindum þjóðarinnar grundvallarkrafa í þeim viðræðum. Viðræðuferlið á að vera opið og lýðræðislegt og leiði viðræðurnar til samnings skal íslenska þjóðin taka afstöðu til aðildarsamnings í þjóðaratkvæðagreiðslu í kjölfar upplýstrar umræðu.“
Heyr, heyr, fín samþykkt. Og ég vek aftur athygli á því að þetta er landsfundarsamþykkt Framsóknarflokksins. (Gripið fram í: Flokksþing.) Heitir það flokksþing? Ég tel að það skipti ekki máli hvert nafnið er en ég er sammála því að á að hafa rétt nafn á því. Flokksþing heitir það hjá ykkur.
„Skilyrði:
Skýr og einhliða úrsagnarréttur, sem er þegar viðurkenndur í aðalsáttmála ESB, verði hluti aðildarsamnings.
Staðfest verði að Íslendingar einir hafa veiðirétt innan íslenskrar fiskveiðilögsögu og að fiskveiðistjórn verði áfram innanríkismál Íslendinga, enda styðjist hún við reglur ESB um stöðug hlutföll, nálægðarreglu og Lúxemborgarsamkomulagið.
Ísland verði sjálfstæður aðili að samningum um flökkustofna.
Fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt og viðurkennd nauðsyn á sérstökum ákvæðum vegna fámennis þjóðarinnar.
Viðurkennt verði að íslenskur landbúnaður sé heimskautalandbúnaður.
Framleiðsla og úrvinnsla íslenskra búfjárstofna verði tryggð ásamt sérstöðu og hreinleika íslenskra búfjárstofna.
Staðfest verði að vegna aðstæðna á Íslandi og fámennis þjóðarinnar hafi Íslendingar varanlegan rétt til að setja lög um forgangsrétt manna með lögheimili og fasta búsetu á Íslandi til að eiga ráðandi hlut í jarðeignum, lóðum, fasteignum og atvinnufyrirtækjum, enda styðjast slík ákvæði við núgildandi reglur á Álandseyjum, Möltu, Asoreyjum og víðar innan ESB.“
Virðulegi forseti. Ég var að hugsa um að hætta við að nefna Möltu. Það er víst ekki vel séð á Möltu að við Íslendingar séum að tala um það nú þessa síðustu daga.
Þessi flokksþingssamþykkt framsóknarmanna er alveg klár. Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra: Hvað meintu framsóknarmenn með þessari samþykkt? Hefur hún verið felld úr gildi? Nei. Ég hef lengi verið áhugamaður um pólitík og fylgst með fundum stjórnmálaflokka þegar þeim er útvarpað og sjónvarpað. Ég fylgdist með fundinum 2009 og vissi nákvæmlega hvað var gert þá. Mér fannst þetta mjög merkileg samþykkt.
Það má halda áfram að lesa um fleiri flokksþingssamþykktir framsóknarmanna frá 2007 og lengra aftur.
Síðan ætla ég bara að nefna það enn einu sinni að 16. júlí 2009 gengum við alþingismenn sem þá sátum hér til atkvæða um tillögu um aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Sú tillaga var samþykkt eftir mikla umræðu, sem er ekkert óeðlilegt því að það er stórt og mikið mál, með 33 atkvæðum gegn 28. Ég hef áður sagt að ég ber virðingu fyrir þeim framsóknarmönnum sem sögðu já við þessari tillögu. Þeir voru þrír: Birkir Jón Jónsson, Guðmundur Steingrímsson, Siv Friðleifsdóttir, einn þriðji þingflokks framsóknarmanna. Birkir Jón Jónsson var þáverandi varaformaður Framsóknarflokksins og samþykkti að ganga til aðildarumsóknar að Evrópusambandinu. Vafalaust hefur hann gert það í ljósi þeirrar samþykktar sem flokksþing þeirra setti fram.
Það voru fleiri sem studdu þessa tillögu, hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, sem situr hér í salnum, en þáverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, sat hjá. Ég man eftir hvað ég var stoltur af þessum þingmönnum utan stjórnarflokkanna sem greiddu atkvæði eftir eigin sannfæringu. Ég ætla nefnilega að greiða atkvæði um aðildarsamning að Evrópusambandinu fyrst og fremst eftir minni sannfæringu þegar og ef hann kemur einhvern tíma fram, sem ég vona innilega.
Ég gæti tekið mörg fleiri dæmi af framsóknarmönnum í þessari umræðu og þeim tvískinnungshætti sem framsóknarmenn sýna núna. Það verður því miður að bíða betri tíma vegna þess að mínar 15 mínútur eru liðnar. En að lokum vil ég segja að ég harma að hæstv. fjármálaráðherra skuli ekki hafa komið í salinn til að taka við þeim spurningum sem ég ætlaði að spyrja hann. Það sýnir hvers konar vanvirðingu framsóknarmenn og sjálfstæðismenn úr ráðherraliðinu sýna Alþingi, það gera þeir með því að láta ekki sjá sig. (BirgJ: Heyr, heyr.) Hafi þeir skömm fyrir. Þessari umræðu er hvergi nærri lokið.
Ég vil að lokum þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir að hafa setið hér í hliðarherbergi og hlustað á þessa ræðu og sett á bak við betra eyrað þær spurningar sem ég setti fram. Ég (Forseti hringir.) skora á hann að koma í andsvar við mig og svara þessum spurningum. Ég skora einnig á aðra framsóknarmenn sem hér eru inni að svara okkur varðandi þær samþykktir sem ég hef gert hér að umtalsefni. Meintu þeir ekkert með þeim?