aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég þakka svarið og skil þetta mætavel. Eins og ég hef áður nefnt í andsvari þá sýnast mér þessir tveir kaflar mjög áhugaverðir einir sér, þeir virka á mig eins hætt hafi verið í miðjum klíðum. Ég skil mjög vel þá afstöðu að vilja klára viðræður um þessa kafla áður en farið er út í einhverjar sérstakar kröfur.
En þá langar mig að spyrja hv. þingmann, ef hann getur frætt mig, út í hitt málið, landbúnaðarmálin. Ég sé ekki betur en þar sé tiltölulega stutt á milli Íslands og Evrópusambandsins ef miðað er við sjávarútvegsmálin. Í þeim kafla er hins vegar talað um að einhverjar deilur ríki innan lands um það hvaða samningsafstöðu eigi að leggja fram til Evrópusambandsins. Það virðist ekki vera sem svo að Evrópusambandið hafi mikið við það að athuga sem nú þegar hefur verið lagt fram, ef ég skil þetta rétt. Ég velti því þess vegna fyrir mér hvort hv. þingmaður geti kannski lagt fram upplýsingar um hvaða deiluefni eru þarna óleyst innan lands í landbúnaðarkaflanum.