143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[22:00]
Horfa

Karl Garðarsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að koma inn á það sem hv. þm. Kristján Möller sagði hér áðan varðandi leka á þessari skýrslu. Ég er sammála honum í því að skýrslan átti auðvitað að fara til stjórnarandstöðunnar á sama tíma og hún kom fyrir sjónir stjórnarþingmanna. Hann getur hins vegar ekki fullyrt að skýrslunni hafi verið lekið af stjórnarþingmönnum. Hann veit jafn vel og ég að fleiri hafa aðgang að henni. (Gripið fram í: Hverjir?) Það eru ýmsir sem hafa aðgang að skýrslum, hinir og þessir aðrir en þingmenn. Þið vitið það allir. (Gripið fram í: Ertu að ásaka …?) Ég er ekki að ásaka einn eða neinn, ég er bara að segja að fleiri hafa haft aðgang að skýrslunni en þingmenn.

Hv. þingmaður sagði hér rétt áðan að hann teldi að ekki hefði átt að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu í byrjun. Það þykir mér mjög undarlegt vegna þess að Evrópusambandið hefur margsinnis lýst því yfir að ekki eigi að fara í viðræður nema rík sátt sé meðal þjóðar um að farið sé í slíkar viðræður. Mér þykir þetta því mjög undarlegt hjá hv. þingmanni.