aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir það sem hv. þm. Elín Hirst sagði áðan varðandi hv. þm. Vigdísi Hauksdóttur. Ég er sammála því að það eru ákveðnir eineltistilburðir hér á þingi gagnvart henni sem ég held að stjórnarandstaðan ætti að láta af.
Varðandi hvar þessi skýrsla birtist þá heyrðist mér einhver segja áðan að ég hefði sagt að hún hefði fyrst birst á heimasíðu Heimssýnar. Ég hef aldrei sagt það, ég hef ekki hugmynd um hvar hún birtist fyrst. Ég sá hana fyrst á mbl.is þegar ég vaknaði morguninn eftir, en hef ekki hugmynd um það hvort hún birtist þar fyrst eða einhvers staðar annars staðar. En það breytir ekki þeirri skoðun minni sem ég sagði áðan að auðvitað hefði stjórnarandstaðan átt að fá þessa skýrslu á sama tíma og stjórnarþingmenn. Ég er þeirrar skoðunar.