aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég er hingað komin til að ræða skýrsluna en í millitíðinni hafa stjórnvöld gefið það út að þau hafi hugsað sér að slíta aðildarviðræðunum. Ég á því kannski frekar erfitt með að ræða skýrsluna en mig langar til að fjalla þá aðeins meira um þetta í víðara samhengi. Ég hélt að við værum að ræða skýrsluna til að ná einhverri niðurstöðu hér í þinginu, fram færi eitthvert samtal og við mundum tala okkur niður á einhverja niðurstöðu sem sátt ríkti um, en ég held að það hafi aldrei verið meiningin eins og hefur komið fram hérna í umræðum.
Mikið hefur verið fjallað um þjóðaratkvæðagreiðslur og mig langar aðeins að ræða um það. Mönnum er tíðrætt um það sem gerðist á síðasta kjörtímabili og bent hefur verið á að þjóðaratkvæðagreiðsla hefði átt að fara fram áður en sótt var um aðild. En niðurstaða kosninganna 2009 var nokkuð afdráttarlaus. Sá flokkur sem hafði ESB-aðild á stefnuskrá sinni vann stórsigur. Mér finnst núna í dag að ekkert vanti upp á að stjórnvöld sem nú sitja lesi í sinn kosningasigur á síðasta ári og telji hann vera eina allsherjarþjóðaratkvæðagreiðslu á öll þau mál sem viðkomandi flokkar höfðu á sinni stefnuskrá eða loforðalista. Mér finnst ekkert endilega eðlilegt að það hafi átt að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla áður en sótt var um aðild vegna þess að niðurstaða kosninganna var nokkuð skýr. Ég held að það hafi reyndar í engu landi farið fram þjóðaratkvæðagreiðsla um það hvort ætti að leggja af stað í viðræður, það hefur einfaldlega verið gert og síðan hefur niðurstaðan verið lögð í dóm þjóðar.
Síðan má spyrja, hefði átt að fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla á síðasta kjörtímabili? Það var vissulega kallað eftir því. Á það hefur verið bent að það hefði kannski veikt samningsaðstöðuna. En það að ekki var farið í þjóðaratkvæðagreiðslu, það eitt og sér réttlætir ekki að nú eigi ekki að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Mér finnst við eiginlega vera föst í einhverjum hefnistjórnmálum. Mér finnst núverandi stjórnvöld ekki geta réttlætt vitlausar aðgerðir eða óbærileg vinnubrögð með því að segja að fyrri ríkisstjórn hafi gert eitthvað álíka. Annaðhvort treystum við þjóðinni til að taka ákvarðanir í stórum málum eða ekki.
Eins og ég sagði áðan var kallað ítrekað eftir að afstaða þjóðarinnar fengi að heyrast á síðasta kjörtímabili og lagðar fram þingsályktunartillögur þar að lútandi. Hvað hefur þá breyst núna? Það læðist að manni sá grunur að stjórnarflokkarnir hafi bara haft áhuga á að kanna vilja þjóðarinnar þegar niðurstaðan gat orðið til þess að stöðva samningaferlið. Það er sem sagt ekki þjóðarviljinn sem skiptir máli þegar upp er staðið.
Títtnefndur hv. þingmaður, Vigdís Hauksdóttir, var meðal þeirra sem kölluðu eftir þjóðaratkvæðagreiðslu á síðasta kjörtímabili og skrifaði grein sem var dagsett 5. janúar 2011 þar sem hún færði rök fyrir því að eðlilegt væri að leyfa þjóðinni að meta hvort halda ætti áfram, og endaði greinina svo, með leyfi forseta:
„Þetta er lýðræðisleg sáttaleið sem ríkisstjórnin getur ekki hafnað.“
Ef það var lýðræðisleg sáttaleið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir þremur árum þá hlýtur þjóðaratkvæðagreiðsla að vera jafn lýðræðisleg sáttaleið í dag. Við skulum ekki gleyma því að þjóðaratkvæðagreiðsla er leið til að ná niðurstöðu í mál. Ef við ætlum aldrei að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu nema fyrir liggi að það sé ríkur vilji þjóðarinnar til að gera eitthvað þá þurfum kannski að sjálfsögðu ekkert að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta er lýðræðisleg aðferð og við ættum að vera duglegri að nýta þá aðferð.
Mér finnst við ættum kannski að hafa eitt í huga — af því að við tölum núna eins og engin ástæða sé til að halda áfram vegna þess að meiri hluti þjóðarinnar vill ekki ganga inn í Evrópusambandið, hefur að vísu ekki séð samninginn enn þá, jafnvel þótt meiri hluti þjóðarinnar vilji ljúka aðildarviðræðum — að innganga í Evrópusambandið hefur verið umdeild í mjög mörgum Evrópulöndum. Það er ekki þannig að 90% þjóða hafi alltaf viljað ganga inn í Evrópusambandið. Við getum líka rifjað það upp að þegar við gerðumst aðilar að EES-samningnum var það mjög umdeilt og hefði eflaust verið fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu, en ég held að við mundum ekki vilja spóla til baka með það mál.
Ef stjórnvöld vilja ekki halda þjóðaratkvæðagreiðslu í dag vegna þess að þau treysta sér ekki til að framfylgja niðurstöðunni, sem er væntanlega kannski sú að meiri hluti þjóðarinnar vill halda áfram, þá er önnur leið. Hún er að gera hlé á viðræðunum og mér hugnast sú leið betur. Mér finnst það vera viss sáttaleið í þessu ferli, ekki slíta viðræðunum sem mér finnst vera skemmdarstarfsemi, heldur gera hlé og bíða átekta. Malta gerði hlé, þannig að fordæmi eru fyrir því þó að ég mundi reyndar vilja að samninganefndir okkar sem skipaðar eru miklu úrvalsfólki fengju að klára sitt starf, en ég get alveg séð hinn kostinn. Ef stjórnvöld treysta sér ekki til að framfylgja vilja þjóðarinnar þá geta þau líka sagt af sér og hleypt öðrum að. Það er alltaf möguleiki.
Ástæðan fyrir því að ég er svona áfram um að klára þetta mál er kannski fyrst og fremst gjaldmiðillinn. Ég sé ekki hvaða kostur er í stöðunni núna ef við slítum viðræðum með krónuna að vopni. Mér finnst ekki hafa komið fram hvaða plön stjórnvöld hafa í gjaldmiðilsmálum. Mér finnst þetta alveg risastórt mál sem við ættum að vera að ræða í hverri viku í þinginu. Hæstv. fjármálaráðherra og forsætisráðherra ættu ekki að fara í viðtal öðruvísi en þeir væru spurðir út í þetta, út í stefnu stjórnvalda í gjaldmiðilsmálum. Það er nefnilega gríðarleg áskorun að stýra hagkerfi með minnsta gjaldmiðil í heimi og það er svo erfitt nú um stundir að við getum það ekki nema vera með höft á krónunni.
Björt framtíð lagði í haust fram þingsályktunartillögu um að stjórnvöld marki sér stefnu í gjaldmiðilsmálum. Hún hefur reyndar ekki komið úr nefnd, ekki komið til síðari umr. Mér finnst það eiginlega mjög merkilegt að flokkur í minni hluta skuli þurfa að leggja fram formlega áskorun til stjórnvalda um að móta sér gjaldmiðilsstefnu. Þannig er það nú samt.
Ég held að mikilvægt sé líka í þessu sambandi að hlusta á atvinnulífið og samtök launþega sem hafa kallað eftir því að aðildarviðræður verði kláraðar. Mörg fyrirtæki hafa beinlínis sagt að ekki sé starfandi á Íslandi vegna hafta, krónan sé ekki gjaldmiðill sem þau vilja nota. Við verðum að hlusta á það.
Síðan eru margir aðrir þættir sem ég held að geti styrkt okkur ef við gerumst aðilar að ESB — vissulega vil ég sjá samninginn, þannig að ég segi þetta auðvitað með þeim formerkjum að ég hef ekki séð hann — en komið hefur verið inn á byggðastefnu ESB. Ég held að hún sé vænlegri til árangurs en sú byggðastefna sem við Íslendingar höfum mótað, til dæmis er aukið frelsi í viðskiptum og niðurfelling tolla. Ég vil trúa því að því geti fylgt aukin hagsæld að efla samvinnu við okkar helstu nágranna- og viðskiptaþjóðir. Í það minnsta eru 28 Evrópulönd sem telja að slík samvinna skili þeim árangri. Ég vil alls ekki loka á þann möguleika.
Svo finnst mér líka áhyggjuefni núna þegar er búið að upplýsa að ríkisstjórnin vilji slíta þessum viðræðum, þá spyr maður hvaða áhrif það geti haft á samstarf okkar við Evrópusambandið og stöðu okkar innan EES sérstaklega. Hefur það eitthvað verið kannað? Það er spurning hvort stjórnvöld hefðu frekar átt að láta vinna skýrslu þar sem þau álitamál eru skoðuð í stað skýrslunnar sem við ræðum hér. Það var hvort eð er greinilega aldrei meiningin að ræða hana af einhverju viti.
Vitum við hvaða afleiðingar þessi ákvörðun kann að hafa, þ.e. að slíta aðildarviðræðunum? Hafa verið teiknaðar upp einhverjar sviðsmyndir í því sambandi? Við uppfyllum ekki skilyrðin um frjálsan fjármagnsflutning í dag. Við erum á undanþágu. Ég velti fyrir mér, geta viðræðuslit haft einhver áhrif þar um? Mér finnst þetta vera stórar spurningar. Ég vil skora á stjórnvöld að gera ekkert í fljótfærni sem getur beinlínis skemmt fyrir hagsmunum Íslands til lengri tíma. Við vitum í sjálfu sér ekkert um það hvort ný umsókn Íslands verði yfir höfuð tekin til greina ef af því verður einhvern tíma í framtíðinni.
Ég vil einnig hvetja til þess að við fáum að ræða þá skýrslu sem Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin eru að láta vinna áður en afdrifaríkar ákvarðanir eins og að slíta viðræðum eru teknar. Í þeirri skýrslu á að skoða kosti og galla þess að ganga í ESB og mér finnst það mjög mikilvægt. Það er ekki eitthvað sem kemur fram í þeirri skýrslu sem við höfum fengið í hendur. Þar er meira bara yfirlit yfir stöðu mála. En það er nákvæmlega það sem við þurfum að skoða, kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið.
Þá finnst mér þessi flýtir, þ.e. að leggja fram þessa þingsályktunartillögu áður en við höfum náð að klára að ræða skýrsluna, hvað á ég að segja, allt að því grunsamlegur. Af hverju ættum við ekki bara að skoða öll gögn ofan í kjölinn og taka upplýsta ákvörðun? Við erum að tala um mál sem getur haft áhrif til framtíðar, ekki bara á okkur heldur börnin okkar og barnabörnin. Þetta er risastórt mál og mér finnst besta leiðin að fá að sjá samninginn, en látum vera að gera hlé. En af hverju er þessi flýtir? Ég átta mig ekki alveg á hvaða hagsmunir liggja þar að baki. Mér finnst það ekki vera almannahagsmunir.
Hægt væri að ræða ótal atriði. Mér finnst við kannski geta talað okkur blá í framan varðandi það hvað við teljum að muni gerast ef við göngum í Evrópusambandið. En það sem mér finnst mikilvægast að ræða núna er hvernig við komum í veg fyrir að stjórnvöld slíti aðildarviðræðunum. Getum við fundið einhverja sáttaleið í því? Ljóst er að þjóðin er ekki sátt við þá ákvörðun. Við sáum og heyrðum það hér í dag, t.d. á Austurvelli. Það þarf mikið til að fólk skundi niður í bæ og mótmæli, það er ekki eitthvað sem við sjáum á hverjum degi. En þjóðinni er mikið niðri fyrir og mér finnst mjög mikilvægt að við reynum að finna einhverja sáttaleið hér. Ef það er að setja viðræðurnar á bið þá get ég sætt mig við það. Ég skora á stjórnarliða að rétta fram sáttarhönd í þessu máli og setja ekki hér allt upp í loft og vaða einhvern veginn áfram og skemma fyrir. Það geta ekki verið hagsmunir okkar að vinna að málinu á þann hátt.