aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta kemur mjög bratt inn. Ég held reyndar að stjórnvöld hafi lesið rangt í aðstæður og hafi ekki búist við þeim miklu mótmælum sem verið hafa, þau hafi ekki áttað sig á hvað fólki þykir mikilvægt að fá að hafa síðasta orðið í þessu máli. Ég vona að þau sjái að sér vegna þess að það er mjög mikilvægt að einhvers konar sátt náist um þetta og sáttin er þá kannski bara að meiri hlutinn ræður. Mér finnst eiginlega ótækt að tveir þingflokkar sem sitja nú á Alþingi ætli bara að ljúka málinu, jafnvel gegn þjóðarvilja. Ef ég man rétt þá sýna skoðanakannanir að meiri hluti þjóðarinnar vill klára aðildarviðræðurnar og a.m.k. þrír ef ekki fjórir flokkar hafa þá afstöðu að klára eigi málið og leggja það í þjóðaratkvæðagreiðslu, jafnvel þótt margir innan míns flokks og hinna þriggja hafi kannski efasemdir um að við eigum heima í Evrópusambandinu. En fólk vill fá að meta þetta og skoða og leggja sjálft mat á málið, ekki láta tvo þingflokka segja sér að nú ætlum við að hætta þessu, við vitum betur en þið.
Mér finnst ég upplifa það núna eftir að tillagan kom fram að fólki er misboðið. Þess vegna kalla ég eftir því að hæstv. utanríkisráðherra leiti sátta í þessu máli. Sáttin gæti verið að setja viðræðurnar á ís, það gæti verið, eða að ákveða að halda þjóðaratkvæðagreiðslu og virða þjóðarviljann. Ég er tilbúin í allar sáttaviðræður og vona að hæstv. utanríkisráðherra sé það líka.