143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[23:14]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég verð að taka undir orð þeirra hv. þingmanna sem talað hafa því að hér er smám saman að dragast upp mjög skýr mynd af því hversu mikið grín þetta er, hversu mikill leikþáttur þetta er sem við neyðumst til að horfa hér upp á. Á ekki að fara fram umræða um þessa skýrslu? Eiga að fara fram einhvers konar einhliða vangaveltur og aðfinnslur stjórnarandstöðunnar um skýrsluna og ýmislegt sem fram kemur í henni? Ætlar stjórnarliðið ekki að taka þátt í samtali? Ég geri kröfu um að kallað verði eftir því hjá hæstv. utanríkisráðherra hver sé eiginlega meiningin með því að leggja þetta mál fram. Til hvers er þessi skýrsla rædd? Til hvers leggur ráðherrann þessa skýrslu fram? Hvaða grín er þetta sem hann stendur hér fyrir?