143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[23:16]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Hér hefur verið kallað eftir þátttöku hæstv. ráðherra og hv. þingmanna stjórnarmeirihlutans um þessa skýrslu og kallað er eftir planinu; hvert er planið? Hver er áætlunin? En getur ekki verið að það séu einmitt þessi stóru vandræði sem við erum nú komin í, sem þessi nýja ríkisstjórn hefur komið okkur í að það er ekkert plan, það er engin áætlun? Þeir sem ekki gera áætlun eru búnir að leggja drög að mistökum, eða eins og þeir segja upp á ensku, með leyfi forseta: „Those who do not plan, plan to fail.“ Ég hef áhyggjur af því, virðulegi forseti, að ástæðan fyrir því að menn komi ekki hér og dragi upp plönin sín sé einfaldlega sú að þau eru ekki til. Þar erum við í djúpum vandræðum sem þjóð.