143. löggjafarþing — 67. fundur,  24. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[23:27]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Nóg hefur verið sagt hér í kvöld um vinnubrögðin og ég veit að þingmenn eru orðnir þreyttir. Allan tímann sem við höfum verið að ræða málið hefur lausnin verið mjög einföld, hún hefur verið augljós, hún hefur verið borðliggjandi, hún hefur verið aðgengileg og lausnin er lýðræði. Við látum þjóðina kjósa um þetta mál. Þá þurfum við ekki að hanga hér langt fram á kvöld, guð má vita hversu lengi, að rífast um það og rífast um að við séum ekki að rífast nóg vegna þess að sumir taki ekki nógu mikinn þátt í umræðunni eða eitthvað slíkt. Ég verð að segja að því lengur sem ég vinn hérna því furðulegra finnst mér allt fyrirkomulagið.

Þjóðin heimtar ekki að við sitjum hér og ræðum málið langt fram á nótt. Þjóðin vill bara kjósa um það. Af hverju í ósköpunum leyfum við henni það ekki? Við ættum að leyfa henni það, hún hefur rétt til þess. Lýðræðið er lausnin.