úrskurður forseta um stjórnartillögu.
Herra forseti. Rétt eftir hádegi birtist frétt á visir.is um að meiri hluti kjósenda allra flokka vilji þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram með aðildarviðræður við Evrópusambandið samhliða sveitarstjórnarkosningum í vor.
Þetta eru, samkvæmt þessari könnun sem var gerð dagana 29.–30. janúar sl., meira að segja tveir þriðju hlutar kjósenda stjórnarflokkanna og svo fleiri hjá öðrum flokkum.
Nú hefur verið lögð fram þingsályktunartillaga um að það skuli gera slíkt, fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu samfara sveitarstjórnarkosningum. Hana flytjum við píratar, Björt framtíð og samfylkingarmenn. Hún er sett sem 5. dagskrárliður í dag. Á eftir þessum lið núna koma störf þingsins, málefni Seðlabankans, skýrslan um aðildarviðræðurnar og svo þingsályktunartillagan um að umsóknin skuli dregin til baka.
Ég spyr forseta: Er ekki hægt að færa umræðuna um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu fram fyrir og setja (Forseti hringir.) hana sem fyrsta mál á eftir störfum þingsins? Þetta er að brenna inni. Ef þetta er ekki afgreitt fyrir föstudaginn (Forseti hringir.) þarf að setja sérstakan þingfund og þá verður ekki af þeirri þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin kallar eftir. Ég spyr forseta: (Forseti hringir.) Getur hann ekki sett tillöguna sem fyrsta mál á dagskrá á eftir störfum þingsins?