störf þingsins.
Herra forseti. Það nýjasta í áróðri gegn lækkun veiðigjalda er að deila þeim veiðigjöldum sem stórútgerðin á að greiða á íbúa þeirra byggðarlaga sem viðkomandi útgerðir eru í. Mér er ekki tamt að vitna í Morgunblaðið en þar segir í gær, með leyfi forseta:
„Veiðigjöldin hafa nífaldast. Vestmannaeyingar borga hæstu veiðigjöldin ásamt íbúum á Höfn í Hornafirði og í Grindavík. Sextán sinnum hærri gjöld á hvern íbúa en í Reykjavík.“
Það er látið eins og viðkomandi íbúar greiði veiðigjöldin úr eigin vasa. Það er uppleggið og áróðurinn. Er það það að þessi veiðigjöld hafi verið að skila sér í sveitarsjóði viðkomandi sveitarfélaga áður en veiðigjöldin fóru að verða alvöruveiðigjöld en ekki aðeins til málamynda eins og var á árum áður? Hafa þessir íbúar fengið veiðigjöldin eða andvirði þeirra í eigin vasa áður en útgerðirnar fóru að borga veiðigjöld að einhverju marki?
Svona er þetta lagt upp, til þess að hefja þann áróður gagnvart íbúum landsbyggðarinnar að verið sé að taka af þeirra fé þær upphæðir sem deilast niður á hvern íbúa í umreikningi Morgunblaðsins, að verið sé að taka upphæðirnar úr vasa viðkomandi íbúa. Þetta finnst mér ómerkilegur áróður sem við verðum að tala gegn, því að það er ekki eins og þessar útgerðir hafi byggt upp fyrirtæki sín, mörg hver, með miklum hagnaði. Ekki sést það á skipaflotanum. Oftar en ekki hafa menn lagt fé í óskyldan áhætturekstur, verslunarhallir í Reykjavík og ýmislegt líkt því, fataverslanir og annað og ýmiss konar brask. Við eigum að varast áróðurinn sem er í Morgunblaðinu.