143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

störf þingsins.

[14:29]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég ætla að vera á sömu nótum og hv. þm. Bjarkey Gunnarsdóttir.

Í dag er samstöðufundur námsmanna á Austurvelli. Þar gagnrýna námsmenn hæstv. menntamálaráðherra og hæstv. ríkisstjórn fyrir skilningsleysi á mikilvægi menntunar og aðgerðaleysi í menntamálum. Þar ítreka námsmenn þörfina fyrir viðunandi námslán til framfærslu. Það vekur athygli að aðeins tvö mál hafa komið inn á hv. Alþingi frá hæstv. menntamálaráðherra, fyrst var það pólitísk yfirtaka á stjórn Ríkisútvarpsins, sem hefur þegar verið afgreidd, og síðan er það frumvarp um skjalasöfn sem er til umræðu núna í allsherjar- og menntamálanefnd.

Í umræðu um skólamál hefur að öðru leyti oftast verið vísað til hvítbókar sem er væntanleg frá hæstv. ráðherra þar sem fjalla á um styttingu náms, brotthvarf nemenda úr skóla og fleira. Mér sýnist þó af viðtölum við hæstv. ráðherra, samanber m.a. viðtal í gærkvöldi, að hæstv. ráðherra ætli að fara með þessa skýrslu eins og farið var með skýrslu frá háskólanum, að ekki eigi að fjalla neitt um hana, hún eigi að staðfesta það sem ráðherrann vill og við eigum að fylgja því. Ég ætla að vona að það verði ekki þannig.

Nýskipuð stjórn hæstv. ráðherra í lánasjóðnum kynnti síðastliðið sumar breytingar á úthlutunarreglum. Það er skemmst frá því að segja að sjóðurinn var rekinn til baka með dómsmáli sem námsmenn höfðuðu. Það er full ástæða til að vekja athygli á því hversu lág framfærsla námsmanna er samkvæmt lánasjóðnum. Við settum þau viðmið fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega að lágmarksframfærsla þar skyldi vera 218 þúsund, sem hún er í dag. Á sama tíma er námsmönnum boðið upp á lán upp á 140 þús. kr. á mánuði ef þeir búa í leiguhúsnæði eða í eigin húsnæði. Það sjá allir að það er engin leið að stunda nám á þeim kjörum.

Hér var verið að ræða um verðtryggingu. Þegar talað er um leiðréttingar á lánum er ekki átt við námslán, það er heldur ekki farið að bjóða upp á óverðtryggð námslán. Ríkisstjórnin stendur sig því ekki í samræmi við þær yfirlýsingar sem gefnar hafa verið.

Ég ætla að vona að við fáum (Forseti hringir.) tækifæri til þess að fara út á Austurvöll og hlýða á námsmenn (Forseti hringir.) þar og sýna samstöðu með þeim. (Forseti hringir.) Á sama tíma getur hæstv. forseti (Forseti hringir.) rætt hvernig (Forseti hringir.) breyta eigi tillögu (Forseti hringir.) hæstv. (Forseti hringir.) utanríkisráðherra (Forseti hringir.) varðandi lok á viðræðum um ESB.