umræður um dagskrármál fundarins.
Herra forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur verið svo önnum kafinn á flótta undan þinginu til þess að þurfa ekki að svara spurningum um það sem forveri hans í embætti kallaði stærstu svik lýðveldissögunnar að hann veit lítið um það hvort hæstv. utanríkisráðherra er reiðubúinn til þess að svara spurningum. Staðreyndin er sú að hæstv. utanríkisráðherra hefur verið hér undir umræðunni. Hann hefur komið tvisvar eða þrisvar til andsvara, að öðru leyti hefur hann ekki svarað nokkurri einustu spurningu.
Það sem við höfum fyrir framan okkur er greinargerð sem hæstv. utanríkisráðherra ber ábyrgð á þar sem þingmenn eru bornir sökum um að hafa brotið stjórnarskrána. Það er fullkomlega eðlilegt að mönnum hitni í hamsi við slíkt og það er eðlileg krafa að hæstv. utanríkisráðherra komi til þessarar umræðu, geri hreint fyrir sínum dyrum, nefni þá sem hann á við og færi skýr rök fyrir máli sínu.