143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

umræður um dagskrármál fundarins.

[15:04]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf):

Forseti. Ég tek undir með þeim þingmönnum sem hafa lagt til að gert verði hlé á þingfundi nú og farið verði yfir bæði þingsályktunartillöguna sjálfa og hvort hún sé almennt þingtæk, og síðan þær ávirðingar sem eru bornar fram í greinargerðinni. Mér fannst svolítið skrýtið þegar hæstv. fjármálaráðherra lýsti því mjög klárlega að þetta væri á ábyrgð utanríkisráðherra. Auðvitað er það á ábyrgð utanríkisráðherra, en ég hélt að ríkisstjórn stæði saman að tillögum sem koma frá henni. Síðan segir hann að erfitt sé að ræða málið, við eigum taka það á dagskrá og þá geti hæstv. utanríkisráðherrann svarað fyrir sig. En ég vil benda hæstv. fjármálaráðherra á að það er ákveðinn ómöguleiki í því vegna þess að gerð er athugasemd við (Forseti hringir.) að þingskjal af þessu tagi sé tekið til umræðu á Alþingi. Það er það sem gagnrýnin gengur út á. En hæstv. fjármálaráðherrann er afsakaður (Forseti hringir.) vegna þess að hann var (Forseti hringir.) ekki við alla umræðuna (Forseti hringir.) og vissi þetta því sennilega ekki.