143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

málefni Seðlabankans.

[15:58]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Frú forseti. Ég rakti, og hef gert það áður, helstu ástæðurnar fyrir því að ég tel mikilvægt að endurskoða lög um Seðlabankann. Í fyrsta lagi eru það tiltölulega nýlegar breytingar á stjórn bankans sem eðlilegt að taka til skoðunar nú að fengnum fimm ára reynslutíma. Í því sambandi kom hv. frummælandi meira að segja inn á að það gæti komið til álita að vera með tvo varabankastjóra. Slíkt kom líka fram þegar frumvarpið kom fram á sínum tíma og hefur verið til umræðu meðal annars í skýrslum sem nýlega hafa verið teknar saman, að við gætum endurmetið þetta fyrirkomulag og t.d. það að það eru þrír innan úr Seðlabankanum sem sitja í peningastefnunefndinni og hverjir það nákvæmlega eiga að vera, hvernig stjórn bankans er skipuð hverju sinni, þetta skiptir allt máli.

Meginmunurinn á því að vera með einn seðlabankastjóra og tvo til vara eða hafa þrjá seðlabankastjóra sem skipta með sér verkum, eins og lengst af var, felst kannski fyrst og fremst í því að síðari leiðin felur í sér að við erum með fjölskipað stjórnvald.

Ég hef nefnt það hér að ástæða er til þess að kanna mörk starfsemi Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans og hafa komið fram ábendingar um það. Það verður hluti þessarar vinnu. Ég hef nefnt aukin verkefni bankans og ég hef nefnt mikilvægi þess að bankinn hafi öll tæki og tól til þess að sinna verkefnum sem snerta verðstöðugleikann. Allt eru þetta ríkar ástæður til þess að taka lögin til endurskoðunar. Það er gert núna af yfirvegun ólíkt því sem átt er við árið 2009. Þá var ekkert samráð, enda endaði sú ríkisstjórn með tímabundinn seðlabankastjóra. Það var stöðugleikinn sem menn buðu upp á þá.

Ég verð að segja alveg eins og er að mér fannst verulega erfitt að hlusta á þær yfirlýsingar sem féllu úr þessum ræðustól um það hversu faglega hefði verið staðið að verkinu og hversu vandað verkið hefði verið. Það var beinlínis hafnað öllu samráði um undirbúning að þeim lagabreytingum sem þá áttu sér stað. Yfirlýsingar sem forsætisráðherra þess tíma lét falla (Forseti hringir.) héðan úr ræðustól og fylgdu síðan í kjölfarið í fjölmiðlum og annars staðar, var árás á Seðlabankann, ólíkt því sem er að gerast núna. (Gripið fram í.)