þingleg meðferð skýrslu um ESB.
Virðulegi forseti. Í gær greindi hæstv. forseti okkur frá því að skýrslan sem er núna að fara að koma hér aftur á dagskrá yrði að lokinni umræðu send til hv. utanríkismálanefndar, og er það vel. En við höfum ekki enn fengið svör við því. Hvað svo? Vegna þess að eðlilegt er að þegar svona stór skýrsla fer til umfjöllunar í nefnd komi nefndarálit hingað inn, eins og kemur fram í þingsköpum, og síðan verði málið tekið aftur til umfjöllunar.
Því spyr ég hvort það sé ekki alveg öruggt að sú þingsályktunartillaga sem beinlínis vísar í þessa skýrslu til grundvallar verði ekki á dagskrá fyrr en öllu þessu ferli er lokið innan utanríkismálanefndar og málið hefur fengið framhaldsumræðu hér í þingsal. Það skiptir mjög miklu máli varðandi framhald umræðnanna á eftir og það skiptir máli að forseti kveði upp úr um hvort þetta sé ekki örugglega rétt skilið hjá mér. Við höfum gert það sama við mál af minna tilefni eins og nýlega um sæstreng. Þá voru vinnubrögð til fyrirmyndar og ég ætla rétt að vona að þingið ætli að vera vant að virðingu sinni og fara eins með þetta (Forseti hringir.) risastóra mál.