143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

þingleg meðferð skýrslu um ESB.

[16:04]
Horfa

Árni Páll Árnason (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil inna forseta eftir því hvernig hann sér framhaldið fyrir sér. Hann er búinn að segja að málið eigi að ganga til nefndar, en ég hef ekki heyrt skýrt að nefndin eigi að skila áliti. Í þessari skýrslu er fullt af góðum hlutum, en það vantar líka í hana fullt af hlutum. Ég nefndi hér í gær að ekki er orð í henni um þann tugmilljarða ávinning sem sjávarútvegurinn mun njóta með aðild að Evrópusambandinu vegna þess að tollfrelsi fyrir íslenskar sjávarafurðir inn á Evrópumarkað eykst. Ég nefndi þetta sérstaklega utan þingsalarins við hv. þm. Birgi Ármannsson, formann utanríkismálanefndar, og hann var sammála mér um það.

Er þetta ekki atriði sem rétt er að ræða í utanríkismálanefnd til að glöggva sig betur á hvort þarna sé yfir höfuð að finna heildarmynd á kostum og göllum Evrópusambandsaðildar með fullnægjandi hætti? Það eru nefndadagar í næstu viku. Er ekki borðleggjandi að fá skýr skilaboð um það hér frá forseta að nefndin vinni í þessu máli í næstu viku, kalli til gesti, fái á sinn fund þá sérfræðinga sem eru að vinna fyrir Alþjóðamálastofnun skýrslu fyrir aðila vinnumarkaðarins o.s.frv. og (Forseti hringir.) skili okkur hér áliti að afloknum nefndadögum sem geti nýst okkur í frekari umræðu, sérstaklega þegar við förum að ræða hina ömurlegu tillögu hæstv. utanríkisráðherra?