143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

þingleg meðferð skýrslu um ESB.

[16:12]
Horfa

Guðbjartur Hannesson (Sf):

Hæstv. forseti. Ég hef miklar áhyggjur af hlutverki Alþingis miðað við það sem hefur verið að gerast hér á síðustu dögum og raunar frá því ríkisstjórnin tók við. Hér heyrum við óminn af tónlist frá Austurvelli þar sem námsmenn eru með samstöðufund þar sem yfirskriftin er „Stöndum með framtíðarkynslóðum“. Í yfirlýsingu frá þeim kemur fram að á morgun ætlar stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna að þvinga fram það sem var rekið til baka með dómsúrskurði fyrr í haust. En það sem er verra er að hæstv. ráðherra mennta- og menningarmála segir á visir.is með leyfi forseta:

„Ég ætla mér að stytta framhaldsskólana og mun gera það.“

Er von að maður spyrji til hvers við séum hérna. Þarf ekki að ræða þetta í þinginu? Þarf ekki að afgreiða þetta? Við fáum hagskýrslu en það breytir engu. Við erum búin að ákveða þetta. Þetta eru stjórnvöldin sem eru komin til valda á Íslandi. Þau geta gefið skít í það fólk sem er á Austurvelli eða mætir hingað eða (Forseti hringir.) þingmennina sem sitja hér í salnum og ætla ekki að virða það að það er þingið sem ákveður lögin í þessu landi en ekki ríkisstjórnin.