þingleg meðferð skýrslu um ESB.
Virðulegi forseti. Það er ekki komið fram svar, hvorki frá hæstv. utanríkisráðherra né öðrum þeim sem hugsanlega hafa eitthvað um málið að segja, hver meðferð eða framhald þessarar 25 millj. kr. skýrslu er, og rúmlega það því ofan á bætist virðisaukaskattur og ýmis ferðakostnaður þannig að þetta er svolítið meira. Það er óheppilegt ef ekki á að kynna skýrsluna fyrir þjóðinni þrátt fyrir að fram komi fyrirheit um að það eigi að gera.
Mig langar að hæstv. utanríkisráðherra svari því hvernig hann hyggst kynna skýrsluna fyrir þjóðinni. Er verið að prenta einhverja upplýsingabæklinga eða ætlar hann að útbúa sjónvarpsþætti, eða guð má vita hvað? Hvað á að gera? Hvernig á að kynna skýrsluna fyrir þjóðinni, eins og sagt er með málinu? Veit hv. þingmaður og formaður nefndarinnar það? Eitthvað hljóta menn að hafa verið búnir að hugsa hvað það varðar fyrst þeir setja inn sem eitt af efnisatriðum að kynna eigi skýrsluna fyrir þjóðinni. Svar óskast, hæstv. utanríkisráðherra.