143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[16:39]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér skýrslu hæstv. utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið og um þróun mála innan sambandsins. Margir hv. þingmenn hafa haft áhuga á að ræða þessa skýrslu enda var eftir henni beðið með þó nokkurri eftirvæntingu. Ég komst því miður ekki að með mína ræðu fyrr en nú, á fjórða degi umræðna um skýrsluna.

Stjórnarliðar höfðu gefið það út mörgum sinnum að skýrsla þessi yrði undirstaða ákvörðunar um hvernig þeir ætluðu að snúa sér í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Hún er því afar mikilvægt plagg eða það var hv. þingmönnum að minnsta kosti talin trú um. Nú er ég satt að segja í erfiðri stöðu í þessum umræðum þar sem hæstv. utanríkisráðherra telur að efnislegri umræðu um skýrsluna hafi verið lokið fyrir helgi og því hafi ekki verið eftir neinu að bíða að leggja til að umsókn um aðild að Evrópusambandinu yrði þá dregin strax til baka. Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur tekið í sama streng.

Virðulegi forseti. Mér finnst það viðhorf hæstvirtra ráðherra sem samþykkt hefur verið af meiri hluta Alþingis með því að samþykkja framlagningu þingsályktunartillögunnar fyrir lok umræðu um skýrsluna vera móðgandi, vægast sagt, og sýna ekkert annað en lítilsvirðingu við þá hv. þingmenn sem ekki höfðu tjáð sig um skýrsluna. Getur hæstv. forseti Alþingis samþykkt slíkt?

Hver er staða hv. alþingismanna sem eiga eftir að ræða skýrsluna úr þessum ræðustóli? Munu orð þeirra hafa eitthvað að segja? Nei, fyrir fram er búið að afgreiða ræður þeirra sem lítils virði. Þótt hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans og hæstv. ráðherrar telji það snjallt að taka ákvörðun í svo stóru máli án þess að umræðu um skýrsluna sem átti að undirbyggja ákvörðunina sé lokið og án aðkomu þjóðarinnar sýnir það sig, m.a. með könnunum og með því fjölmenni sem mætti til að mótmæla á Austurvelli í gær, að stór hluti þjóðarinnar er þeim ósammála. Óskað hefur verið eftir því að hæstv. forseti taki tillögu hæstv. utanríkisráðherra af dagskrá þingfundar í dag. Rökin fyrir því eru augljóslega þau að enn er verið að ræða skýrsluna sem á að vera grundvöllur tillögunnar en ekki síður vegna þeirra álitamála sem upp eru komin um gildi hennar og þeirra alvarlegu ásakana sem settar eru fram í greinargerð með þingsályktunartillögunni í garð þeirra þingmanna sem greiddu atkvæði um aðildarumsóknina sumarið 2009.

Þessi staða er algjörlega óásættanleg og ég trúi því ekki að hæstv. forseti láti hana afskiptalausa enda er æra þingmanna í húfi sem og virðing Alþingis.

Ég velti því fyrir mér hvað það er í skýrslunni sem hæstv. utanríkisráðherra telur að skeri með svo afgerandi hætti úr um að umsóknarferlinu skuli slitið án þess að hún hafi fengið þinglega meðferð. Eða skipti hún kannski engu máli eftir allt saman? Var kannski löngu búið að ákveða að slíta viðræðunum?

Fjallað er í skýrslunni um stöðu aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins, laga- og stofnanaþróun Evrópusambandsins og stöðu og horfur í efnahagsmálum Evrópusambandsins. Ekki er fjallað um mögulega upptöku evru ef Ísland gengi í Evrópusambandið og hugsanleg áhrif þess á hag fólks í landinu en vísað í skýrslu Seðlabankans frá september 2012 og bent á að við þá skýrslu sé litlu að bæta.

Skýrsla Seðlabankans um valkosti Íslands í gjaldmiðils- og gengismálum er viðamikil og telur rúmlega 600 blaðsíður. Þar er meðal annars fjallað um reynslu Íslendinga af eigin gjaldmiðli og hversu illa hefur gengið að varðveita verðgildi íslensku krónunnar. Því er hins vegar ekki svarað hvers vegna stefna lítillar verðbólgu og efnahagslegs stöðugleika virðist eiga undir högg að sækja hér á landi og hvers vegna agaleysi í hagstjórn og lausatök í regluverki og eftirliti með fjármálakerfinu fengu að viðgangast á árunum fyrir fjármálakreppuna en bent er á að frekari rannsóknir þurfi á því.

Í riti Seðlabankans eru færð rök fyrir því að kreppan á evrusvæðinu sé ekki gjaldeyriskreppa. Gjaldeyriskreppa eða kreppa gjaldmiðilsins sem slíks er ekki sögð hluti af vandamálinu fremur en að gjaldeyriskreppa hafi verið hluti af fjármálakreppunni í Bandaríkjunum. Þessi staðreynd er mikilvæg í umræðunni því að of oft er því haldið fram að kreppan á evrusvæðinu sé einmitt gjaldeyriskreppa. Ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu og tæki upp evru hefði það meðal annars í för með sér, samkvæmt hermireikningi sem skýrður er í riti Seðlabankans, að innlendir raunvextir lækkuðu, innlendur fjármagnsstofn stækkaði og landsframleiðsla á mann hækkaði varanlega við inngöngu lítils lands eins og Íslands í stærra myntsvæði.

Einnig fylgja aðild að ESB og evrusvæðinu kvaðir varðandi stefnuna í ríkisfjármálum og aðra þætti efnahagsstefnunnar sem ætlað er að sporna gegn agaleysi í hagstjórn. Sagan sýnir að okkur veitir sannarlega ekki af slíku aðhaldi. Ásamt þátttöku í margvíslegu samráði um efnahagsstefnu og fjármálastöðugleika sem ætti að stuðla að betri stefnu á þessum sviðum fengist aðgangur að björgunarsjóðum og sameiginlegu öryggisneti sem ætlað er að takast á við áföll í einstökum ríkjum.

Losun fjármagnshafta er mikilvægt en jafnframt flókið úrlausnarefni. Höftin reyndust mikilvæg við að ná stöðugleika í þjóðarbúskapnum í framhaldi af fjármálaáfallinu. Nauðsynlegt er þó að losa um höftin vegna þess að þau hafa í för með sér kostnað sem vex með tímanum og verður til lengdar meiri en ávinningurinn. Ekki mun heldur ganga til lengdar að vera með höft á útstreymi fjármagns og vera samtímis innan EES-svæðisins. Losun fjármagnshaftanna gengi greiðlegar ef við gengjum í myntbandalag.

Margir hafa orðið til þess að gagnrýna þá ákvörðun stjórnvalda að slíta viðræðum við ESB og meðal þeirra eru forstjórar tveggja stórra alþjóðlegra fyrirtækja hér á landi, Marels og CCP. Þeir benda á að enginn annar valkostur hafi verið dreginn fram og benda einnig á að gjaldeyrishöftin standi nýsköpun hér á landi fyrir þrifum. Við inngöngu í Evrópusambandið eru möguleikar á lægri vöxtum á Íslandi, minni verðbólgu, traustum gjaldmiðli, afnámi verðtryggingar og greiðum aðgangi að stórum markaði fyrir íslenskar vörur. Allt varðar þetta almannahag, hag heimilanna í landinu. Það er þess vegna sem mér finnst liggja beint við að hag okkar sé best borgið eða betur borgið í efnahagsbandalagi með Evrópuþjóðum.

Ef lokað er á inngöngu í Evrópusambandið núna þannig að ekki verði aftur snúið á næstu árum og jafnvel áratugum er það grafalvarlegt mál, einkum þar sem stjórnvöld eru ekki með neitt annað efnahagsplan. Fyrir fáum árum hlustaði ég á utanríkisráðherra Eistlands flytja erindi um það af hverju Eistar sæju sér hag í því að ganga í Evrópusambandið. Hann fór vel yfir ýmsa fleti málsins og sagði síðan að lítil þjóð eins og Eistland þyrfti að tryggja sjálfstæði sitt og styrkja stöðu sína með því að gera bandalag við aðrar þjóðir og nefndi Evrópusambandið af efnahagslegum ástæðum og NATO af öryggisástæðum. Andstæðingar aðildar að Evrópusambandinu hér á landi tala hins vegar eins og við verðum ekki lengur sjálfstæð þjóð ef við göngum í Evrópusambandið en svara ekki þeirri spurningu hvort Frakkar, Þjóðverjar, Danir, Svíar eða Finnar séu ekki sjálfstæðar þjóðir þótt þær hafi gengið í efnahagsbandalag með fleiri þjóðum.

Í skýrslunni sem er hér til umræðu stendur að með tímanum hafi byggðamál fengið æ meira vægi innan Evrópusambandsins og verið samofin landbúnaðar- og atvinnustefnu þess. Einnig hafi málin þróast í þá átt að tengja byggðastyrki við framleiðsluhætti sem tengjast öðrum markmiðum, svo sem umhverfis- og loftslagsmálum. ESB-ríkin hafa undanfarin ár lagt áherslu á málefni byggðarlaganna og hafa skuldbundið sig til að vinna að félagslegum og efnahagslegum stöðugleika og þróun á þeim svæðum sem þess þurfa. Evrópusambandið hefur einnig sett á fót héraðsnefnd þar sem sveitarfélög aðildarríkjanna eiga fulltrúa sem vinna að stefnumótun er varðar sveitarstjórnarstigið.

Eitt af markmiðum byggðastefnunnar er að ýta undir samstarf landshluta að lausn sameiginlegra vandamála og samvinnu á sviði rannsókna og nýsköpunar. Byggðastefnan gefur landshlutunum eða svæðunum aukið sjálfstæði og gengur út á að þau taki við verkefnum sem ríkisvaldið hefur séð um, svo sem í atvinnumálum og þróun svæðisins almennt. Byggðastefna Evrópusambandsins hefur stuðlað að uppbyggingu á svæðum sem hafa dregist aftur úr í félagslegum og efnahagslegum skilningi.

Aukinn stuðningur er við sveitarfélög hvað varðar nýsköpun og við frumkvöðlastarf. Ef Ísland gengi í Evrópusambandið mundu sveitarfélög hér á landi njóta góðs af öllum þeim áætlunum og verkefnum sem eru í gangi innan byggðastefnu ESB.

Verkefnið Sóknaráætlun landshluta, Ísland 20/20 er byggt upp í anda byggðastefnu ESB. Mikil vinna að því verkefni hefur átt sér stað um allt land og almenn ánægja er með það meðal sveitarstjórnarmanna í öllum stjórnmálaflokkum. Hæstv. ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar skar fjármuni til þess verkefnis niður um 75% í fjárlögum 2014 og olli það miklum vonbrigðum meðal sveitarstjórnarmanna og þeirra sem notið höfðu góðs af þessu fyrirkomulagi. Sveitarfélögin innan landshlutasamtakanna allt í kringum landið forgangsröðuðu verkefnum sem þau vildu byggja upp og fengu úthlutað fé til þeirra. Vissulega hefðu þau viljað fá hærri fjárhæðir til skiptanna en þau höfðu fagnað því að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hafði í áætlun sinni gert ráð fyrir að lagt yrði aukið fjármagn til verkefnisins þegar færi gæfist. Sveitarfélögin komu þannig með virkari hætti að fjárlagagerðinni og úthlutun fjármuna til aðkallandi verkefna.

Þessu vinnulagi vildi hæstv. forsætisráðherra ekki una en ákvað þess í stað að veita sjálfur styrki í samráði við Minjastofnun Íslands vegna atvinnuskapandi verkefna í minjavernd. Um er að ræða 205 millj. kr. sem útdeilt er til verkefna víða um land. Hæstv. forsætisráðherra hefur úthlutað til atvinnuskapandi verkefna án þess að bera ákvörðunina undir landshlutasamtökin eða einstaka sveitarfélög. Sveitarstjórnarmenn hafa lýst furðu sinni á þessu og af því berast fréttir frá bæjarfulltrúum að styrkveitingar hafi komið þeim í opna skjöldu enda hefðu sveitarfélögin ekki óskað eftir framlagi. Eitt sveitarfélaganna fékk til dæmis úthlutað 5 millj. kr. til að byggja grunn undir hús sem er í einkaeigu. Sveitarstjórninni er þar vandi á höndum og verður væntanlega að setja sig í samband við eiganda hússins og finna út úr því hvernig framkvæma megi vilja hæstv. forsætisráðherra eða skila styrknum.

Í Sóknaráætlun landshluta er gert ráð fyrir svæðisbundnu samráði, ígrundaðri áætlanagerð, þarfagreiningu, viðmiðum og eftirliti með þeim verkefnum sem fá styrki úr ríkissjóði líkt og styrkjum sem veittir eru af ESB til byggðamála. Undir úthlutun liggur regluverk sem fara verður eftir, m.a. til að tryggja jafnræði á milli þeirra sem óska eftir fjárstuðningi. Sumir hafa í umræðunni um Evrópusambandið og reyndar einnig um EES-samninginn sagt að þeim fylgi regluverk sem sé íþyngjandi og þvælist fyrir frumlegum og röskum stjórnmálamönnum sem vilja ekki láta regluverk tefja sig.

Mér finnst það vera lýsandi fyrir ólík sjónarmið hvað þetta varðar að bera saman ferlið og regluverkið sem notað var um Sóknaráætlun landshluta á síðasta ári og nýlega úthlutun hæstv. forsætisráðherra vegna atvinnuskapandi verkefna. Í Sóknaráætlun er lögð áhersla á að fara eftir ákveðnum viðmiðum eftir ítarlegt samráðsferli en með úthlutun hæstv. forsætisráðherra er það hann sem réttir sveitarfélögum fé úr ríkissjóði til verkefna sem þau hafa jafnvel ekki beðið um.

Ásamt ýmsum göllum á því fyrirkomulagi liggur þarna mikil hætta á að falla í spillingargildru ef sú staða kynni að koma upp að vinir eða öflugir stuðningsmenn stjórnmálamannsins sem hefur um úthlutunina að segja krefðust styrkja af almannafé í skiptum fyrir stuðning við stjórnmálamanninn. Með þessu er ég alls ekki að segja að þetta eigi við um úthlutun hæstv. forsætisráðherra en vil benda á gildruna sem stjórnmálamenn með slíkt vald geta fallið í. Það er enginn vafi í mínum huga að frekar treysti ég regluverki í anda Evrópusambandsins og Sóknaráætlun landshluta til að ákveða útdeilingu ríkisfjármuna en að það sé gert með geðþóttaákvörðun einstakra stjórnmálamanna. Þarna liggur skarpur áherslumunur að mínu mati og eru kostir regluverks Evrópusambandsins ótvíræðir í þessu samhengi.

Virðulegi forseti. Aðeins er hægt að taka upplýsta ákvörðun um það hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið eða ekki á grundvelli aðildarsamnings og þannig meta kosti þess og galla. Það er fullkomlega eðlileg krafa að ferlið verði klárað og þjóðin fái að ákveða út frá samningum sem fyrir liggja hvort hún vill ganga í Evrópusambandið eða ekki. Stjórnvöld eiga ekki að taka þann möguleika frá þjóðinni. Hvaða hagsmunum þjónar það að hætta núna? Má ekki fara betur yfir ákvörðunina í svona stóru máli sem varðar almannahag frá svo mörgum hliðum? Sá grunur læðist að mér að ekki sé verið að verja almannahag með þeirri ákvörðun að slíta viðræðum um aðild að Evrópusambandinu.