aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég hef svolítið verið að pæla í þessum tveimur stóru köflum, landbúnaðarkaflanum og sjávarútvegskaflanum, og hef komið upp af og til til að spyrja út í eitt sem mér finnst þessi skýrsla einhvern veginn ekki útskýra alveg nógu vel. Kannski er ég ekki búinn að leita nógu vel en er þó búinn að leita eitthvað. Það varðar það sem eftir stendur við samningsafstöðu Íslands í landbúnaðarmálunum. Ég sé ekki betur af skýrslunni en að það mál hafi verið komið temmilega af stað, í raun ekki verið nein deila svo ég sjái milli Íslands og Evrópusambandsins, reyndar hafi Evrópusambandið þvert á móti boðið Íslandi að leggja inn samningsafstöðu sína en að það hafi verið einhver innri ágreiningur hérlendis um þetta.
Ég er að velta fyrir mér hvers vegna það sé, sérstaklega með hliðsjón af matvælaöryggi.
Eins og ég sé landbúnaðarstefnuna snýst hún væntanlega fyrst og fremst um matvælaöryggi, hefði ég haldið, og mér skilst að mataröryggi á Íslandi sé ekki nema í kringum 50%, þ.e. að innlend framleiðsla dugi fyrir sirka 50% af þjóðinni. ESB er væntanlega ekki sama þótt við sveltum og þess vegna velti ég rosalega mikið fyrir mér hverjar þessar innri deilur eigi að hafa verið hérlendis sem hafi fyrirbyggt það að við legðum inn samningsafstöðu í landbúnaðarmálum.
Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður geti eitthvað frætt mig um þetta mál því að skýrslan virðist ekki gera það.