aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Herra forseti. Ég þakka spurninga. Það er vissulega eilítið súrrealískt að fara að vinna á þingi. En við í Bjartri framtíð höfum haft háleitt markmið og mörgum hefur kannski fundist það barnalegt markmið, það sé svo „far out“ að reyna að bæta stjórnmálin. En við trúum því að ef við gerum það komist hlutirnir í gang, komist áfram.
Við sjáum auðvitað að þetta er ekkert eðlilegt umhverfi og svona virkar þetta ekki í fyrirtækjum landsins. Ef hver höndin er upp á móti annarri og fólk hlustar ekki hvert á annað kemst enginn lönd né strönd. Það er vissulega háleitt markmið að reyna að breyta þessu en þetta er grundvallaratriði, að ég tel, í farsæld íslenskrar þjóðar. Hér stoppar allt of margt og við erum ekkert ofboðslega klár enn sem komið er að tala saman.
Ég hafði miklar væntingar til þess að fá að fjalla um þessa skýrslu og gera það eftir settum leikreglum hér á Alþingi. Ég vil trúa því áður en annað kemur í ljós að hér sé fólk að vinna af heilindum og meini það sem það segir, að það vilji hlusta á alls konar sjónarmið og það hafi eitthvað að segja. En ég hef orðið fyrir vonbrigðum með það.