143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

aðildarviðræður við Evrópusambandið.

320. mál
[17:49]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Frú forseti. Við ræðum hér mál sem ég ætla bara að játa að er mér tilfinningamál. Ég ætla bara að segja eins og er að það færir mér töluverðan styrk og von að finna að það eru þúsundir Íslendinga sem líta augljóslega líka á þetta sem tilfinningamál því að það fólk hefur ákveðið að mæta hér annan daginn í röð til að mótmæla fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar. Það er fólk, þúsundir manna og kvenna sem fylla hér Austurvöll annan daginn í röð. Þetta fólk er ekki allt í Samfylkingunni.

Ég hef verið þarna úti. Þarna er fólk sem hefur kosið alla þá flokka sem eiga fulltrúa hér á þingi. Þarna eru kjósendur Framsóknarflokksins, kjósendur Sjálfstæðisflokksins, kjósendur Samfylkingarinnar, kjósendur Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, kjósendur Bjartrar framtíðar, kjósendur Pírata og kjósendur allra þeirra fjölmörgu flokka sem buðu hér fram í umróti og ólgu eftirhrunstímans á Íslandi. Ég tala ekki fyrir munn alls þessa fólks en ég veit að við erum öll ósátt af ýmsum ástæðum við að ríkisstjórnin ætli sér með hraði að loka dyrunum á ákveðna framtíðarmöguleika Íslands sem aðildarviðræður við Evrópusambandið fela í sér.

Frú forseti. Ég stóð hér 16. júlí árið 2009 og greiddi atkvæði með aðildarumsókn um Evrópusambandið. Ég sagði jafnframt í atkvæðaskýringu að ég teldi að það mundi efla okkur þrótt og bjartsýni á framtíðina að fara í þessar aðildarviðræður. Ég veit að það voru langt í frá allir sammála en sú leið var valin af meiri hluta þingsins að fara í aðildarviðræður og að lokum, þegar samningur lægi fyrir, þá skyldi hann lagður í hendur þjóðarinnar.

Ég sagði hér í upphafi að þetta væri mér tilfinningamál og ég er hér í umræðu um skýrslu. Ég fjalla ekki mikið um það sem í þessari skýrslu stendur því að eins og ég hef margoft komið inn á í fundarstjórn forseta þá hefur þingið og viðhorf okkar þjóðkjörinna fulltrúa þingsins verið gert að engu með því að hér hefur verið sett á dagskrá tillaga um að hætta við og draga til baka umsókn um aðild að Evrópusambandinu.

Ég hef verið Evrópusambandssinni í nær 20 ár ef ekki betur, jú, lengur en 20 ár. Ég var ung kona, nýfarin að beita mér í pólitík innan Samtaka um kvennalista og fram fóru grundvallarumræður um Evrópska efnahagssvæðið og hvort Ísland ætti að gerast aðili að því. Þá var auðvitað tekið vel á, eins og kvenna er von og vísa. Farið var í grundvallarumræðu innan Kvennalistans og málin skoðuð frá öllum hliðum. Þeir sem muna aftur í tímann vita að þetta mál var mjög erfitt fyrir Kvennalistann, rétt eins og þetta mál er flestum flokkum erfitt því að fólk er ekki algerlega sammála um Evrópusambandið og þar eru ekki alltaf flokkslínurnar sem ráða. Ég man að þarna fékk ég einstakt tækifæri til að kynna mér ýmsar hliðar Evrópusambandsins og ég man að að lokum taldi ég ekki einvörðungu að Ísland ætti að vera aðili að Evrópska efnahagssvæðinu heldur ól ég, eins og margir á þessum tíma, raunar þá von í brjósti að einhvern daginn mundum við sækja um aðild að þessu sambandi. Og sá dagur kom. En af hverju vildi ég á þessum tíma að Ísland sæktist eftir því að verða þátttakandi í þessum félagsskap? Ég var ungur femínisti sem mótmælti feðraveldinu og klíkuskap karla. Varla sá ég Brussel sem sjöunda himin femínista, karlana í Brussel að ráða ráðum sínum með einstaka kerlingum.

Konum hefur fjölgað mjög á síðustu árum bæði á vettvangi stjórnmála á Íslandi sem og innan Evrópusambandsins. En það sem ég sá sem ung kona á Íslandi, femínisti, var samband sem hafði ákveðið að vinna sameiginlega að framfaramálum íbúa álfunnar. Ég sá að Ísland, sem sökum smæðar er oft á eftir öðrum þjóðum varðandi framfaramál, varðandi lýðræðisumbætur, varðandi umhverfismál, varðandi mannréttindamál, gæti orðið eftirsóknarverðara land að búa í ef við værum aðilar að þessu sambandi. Þar væri stærri hópur fólks að vinna að málum sem skiptu t.d. mig og margar aðrar ungar konur og eldri konur sem og marga karlmenn miklu máli. Þarna leit ég líka, ung kona, til þess að ég bjó á Íslandi helmingaskiptanna, á Íslandi þar sem fyrst og fremst tveir flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, skiptu með sér völdum og auði í landinu, hygldu vinum sínum og vandamönnum, sköruðu eld að köku sinni og sinna og gerðu Ísland að því andverðleikasamfélagi sem leiddi hér til fullkomins hruns.

Að sjálfsögðu er Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki ekki eingöngu um að kenna. Minn flokkur sat í stjórn undir lok fyrirhrunsáranna.

Bankamenn í bönkunum, sem höfðu verið einkavæddir til vina Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, fengu að leika lausum hala með veikar eftirlitsstofnanir og alþjóðleg fjármálakrísa, sem margir telja að sjái í raun ekki fyrir endann á, lék landið grátt sökum þess að hér fékk bankakerfið að vaxa langt umfram það sem eðlilegt gat talist. Þegar ég hugsa til þess að hér eigi með óeðlilegum flýti, þvert á loforð í kosningabaráttunni, þvert á stefnuskrá og stjórnarsáttmála að kippa til baka þessum glugga af framtíðinni þá er okkur mörgum heitt í hamsi og við sameinumst þvert á flokkslínur, við sameinumst í því að við viljum sjá hvaða árangri við getum náð fyrir Ísland og komandi kynslóðir með samningi við Evrópusambandið.

Evrópusambandið er hagsmunabandalag 28 ríkja sem stofnað var í kjölfar skelfilegra styrjalda í Evrópu sem geisuðu þar hver á fætur annarri. Og í stað þess að fara í stríð um efnahagslega hagsmuni ákváðu þjóðirnar að bindast böndum í hagsmunabandalagi, friðarbandalagi. Fleiri og fleiri þjóðir hafa valið að tengja sig þessu sambandi; flestar Norðurlandaþjóðirnar, tvær þeirra, Svíþjóð og Finnland, í kjölfar mjög erfiðra efnahagskreppa. Margar þessara þjóða, austur-evrópskar þjóðir, gerðu það í kjölfar þess að þær losnuðu undan kommúnistastjórn sem kúgaði fólk og tók frá því sköpunarkarft og lýðræði.

Það er alvarlegt að tala um samband sem þetta sem einhvers konar kúgunarvald. Ég geri mér grein fyrir því að komi að því að Íslandi fái samning við Evrópusambandið þá kann svo að fara að ég verði ekki ánægð með allt sem í þeim samningi verður. Ég get ekki alveg vitað það nema ég fái að sjá samninginn. En þá þarf að vega og meta hvaða hagsmunum vill maður fórna. Er maður tilbúinn til að fórna minni hagsmunum fyrir meiri? Það er þess vegna sem það skiptir máli að fá samning á borðið til að fólk fái að gera upp við sig hvort það telji að Evrópusambandið sé betri valkostur en það að standa utan þess.

Frú forseti. Ég vék hér að andverðleikasamfélaginu og helmingaskiptakerfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Það er þetta kerfi sem þorir ekki að leyfa þjóðinni að sjá samning við Evrópusambandið. Hvað óttast hinir háu herrar? Óttast þeir að kannski muni fólk, ef það fær í raun og veru að tala efnislega um þetta samband, friðarbandalag Evrópuálfu, telja að það sé gott að vera þar? Og hvaða hagsmunum mundi það ógna ef Íslendingar sæju sér betur borgið innan Evrópusambandsins? Hagsmunum þeirra sem hafa hér með yfirgangi og frekju hafa hrifsað til sín völd og efnahagsleg og gæði og með geðþóttaframgangi og öfgahætti tekið af þinginu tækifæri til að ræða með málefnalegum hætti um framtíð Íslands? Ég hvet unga og nýja þingmenn hér í þingsal til að velta því fyrir sér hvort þeir ætla að vera þeir einstaklingar sem marka brautina fyrir áframhaldandi alvarleika á Íslandi, sem ryðja brautina fyrir einstaklinga sem eru vanir því að ráða í krafti klíkuskapar, valda og auðs og taka það af almennum borgurum þessa lands að fá sjálfir að taka ákvörðun um hvert þeir vilja stefna með Ísland. Ef fólk ætlar að hefja þingferil sinn á því að svíkja loforð við kjósendur sína, að ganga í berhögg við vilja meiri hluta þjóðarinnar þá er það vægast sagt vont upphaf að þingferli.

Frú forseti. Þetta er ekki bara tilfinningamál af því að ég sé Evrópuhugsjónina sem fallega hugsjón heldur líka vegna þess að ríkisstjórnin sem gengur fram með þessum hætti er ekki með plan. Hún boðar hér aðgerðir með hraði sem eru fullkomlega óþarfar en býður ekki upp á plan í gjaldmiðilsmálum fyrir Ísland, býður ekki upp á plan um efnahagsstefnu, býður ekki upp á plan um afnám hafta, býður ekki upp á plan um uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs og býður ekki upp á plan hvernig efla eigi hér erlendar fjárfestingar. Hvað sem okkur kann að finnast í brjósti okkar um Evrópusambandið eða friðarbandalög eða samvinnu Evrópuþjóða þá getum við þó deilt áhyggjum yfir því að hér er með öfgafullum hætti verið að þjóna klíkuhagsmunum á kostnað efnahagslegrar farsældar heillar þjóðar. Ég lýsi yfir miklum áhyggjum af þeim vinnubrögðum sem við höfum orðið vitni að hér síðustu daga og vona að okkur takist að leiða ríkisstjórnina af þeirri leið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)