143. löggjafarþing — 68. fundur,  25. feb. 2014.

um fundarstjórn.

[20:17]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Árna Páls Árnasonar. Það er mikilvægt fyrir framhald umræðunnar og í ljósi aðdraganda fundar forsætisnefndar að við fáum niðurstöðu þess fundar og fáum að vita hvernig málin standa akkúrat núna eftir þann fund og hver skilningur forsætisnefndar og forseta var á þeim álitamálum sem upp komu í umræðunni um fundarstjórn forseta fyrr í dag. Alvarleikinn er töluverður og mikilvægt er að fá botn í það til að við getum haldið umræðunni áfram á efnislegum grunni.