aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Hæstv. forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir þá skýrslu sem hann hefur lagt fram sem innlegg í umræðuna og ekki síður sem gagn í nauðsynlegu stöðumati til að meta hvaða skynsamlegu skref eigi að taka í framhaldinu.
Ég ætla að bera niður á bls. 32 í skýrslunni, þar sem talað er um skilyrði fyrir aðild.
Þar stendur, með leyfi forseta:
„Þau lönd sem óska eftir aðild að Evrópusambandinu gangast undir ákveðin grundvallarskilyrði. Í meginatriðum snúast þau um að aðildarríki samþykki sáttmála Evrópusambandsins, markmið þeirra og stefnu og þær ákvarðanir sem teknar hafa verið þegar þeir öðluðust gildi. Gengið er út frá því að umsóknarríki sækist eftir aðild.“
Er þetta ekki bara kjarni máls? Ég held að þetta sé hreinlega kjarninn í umræðunni. Gengið er út frá því þegar við sækjum um aðild að við ætlum inn í sambandið, við sækjumst eftir því. Svo getum við rætt hér alla daga um ómöguleika, það er nú bara orð sem hefur vissa merkingu og er hægt að tengja þessu lykilatriði.
Í stjórnarsáttmálanum segir skýrt að ekki skuli haldið áfram nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Við höfum í liðinni viku rætt skýrsluna og í umræðuna hafa blandast hin ýmsu sjónarmið um hvort hagsmunum Íslands sé betur borgið innan sambandsins, já, eða utan, en það eru ekki einungis þau sjónarmið heldur og þeirra sem telja að skynsamlegt sé að klára viðræður og meta stöðuna þá, vega og meta fyrirliggjandi samning og falla þá frá fyrirliggjandi samningi ef okkur hugnast ekki það sem er í boði. Í þessu er fólgin pólitísk klemma. Þetta er ekki einfalt, þetta er ekki svart eða hvítt, þetta er ekki já eða nei, hér er þriðji hópurinn.
Virðulegi forseti. Það er þessi krafa að fá samninginn á borðið og fyrr sé ekki hægt að taka viðhlítandi ákvörðun. Það litast síðan af þeirri kröfu viðræðusinna sem byggir á því að loforð hafi verið gefin um að þjóðin ætti að fá að kjósa. Við þær aðstæður ræðum við þessa annars ágætu skýrslu.
Þessar kringumstæður fengu svo á sig hitaþrunginn blæ þegar þingsályktunartillaga hæstv. utanríkisráðherra var birt, sem verður lögð fyrir þingið þegar þessari umræðu lýkur. Sú tillaga felur í sér, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jafnframt ályktar Alþingi að ekki skuli sótt um aðild að Evrópusambandinu á nýjan leik án þess að fyrst fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort íslenska þjóðin stefni að aðild að Evrópusambandinu.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að treysta tvíhliða samskipti og samvinnu við Evrópusambandið og Evrópuríki.“
Þegar þingskjalið birtist og fór í umræðu steig hitinn heldur betur í umræðunni og athyglin á skýrsluna og innihald hennar þvældist frá, og hér voru höfð uppi stór orð. Í raun er það ekki nema eðlilegt í mínum huga að hæstv. ríkisstjórn gangi hreint til verks með slíka tillögu enda er hún í fullu samræmi við fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar. Hins vegar má deila um hraðann, fram hefur komið hvort ekki hefði mátt fullræða innihald skýrslunnar, en andstæðingarnir tala auðvitað ekki um hraða, þeir tala um asa. Þannig er nú umræðan, staðan sem við erum í með þessa umræðu. En hagsmunirnir snerta alla þjóðina, umræðan er eðli málsins samkvæmt ekki bara hér á þingi.
Sérfræðingar segja að ekki verði um langa framtíð teknar upp aðildarviðræður við Evrópusambandið, í besta falli verði það erfitt. Forsvarsmenn atvinnulífsins segja sig hunsaða, leiðarahöfundar leggja svo mat á umræðuna út frá sínu sjónarhorni. Umræðan er stóryrt, hún er tilfinningarík. Og staðreyndir skýrslunnar, jú, við reynum svona á milli þess sem við tökum upp annars konar umræður að ræða hana, en þær hafa að mínu viti kannski fullmikið verið lagðar til hliðar í þeirri orrahríð og segja má að sínum augum lítur hver á silfrið.
Virðulegi forseti. Enn og aftur heyrist því fleygt að ef við löfum ekki á Evrópusambandinu sé engin efnahagsstefna. Það eitt og sér leyfi ég mér að líta alvarlegum augum en um leið endurspeglar það hvar á vegi umræðan er og hversu flókið málið er. Ég er ekki að gera lítið úr umræðunni, virðulegi forseti, ég tek það fram. Ég er fyrst og fremst að reyna að benda á hversu viðamikið og flókið málið er.
Efnahagsstefna er víðtækt hugtak og felur í sér bæði fjármálastefnu og peningamálastefnu. Hvort tveggja liggur fyrir. Í stuttu máli hefur tónninn verið gefinn með fjármálastefnuna í fyrirliggjandi fjárlögum þar sem snúið er frá skuldasöfnun og aukinni vaxtabyrði, skattalækkunarferlið hafið og forgangsröðun gjalda er skýr í þágu velferðar.
Kjarninn í peningamálastefnunni er sjálfstætt hlutverk Seðlabanka þar sem verðstöðugleiki er meginmarkmið. Gjaldmiðillinn er vissulega mikilvægur þáttur þegar kemur að peningamálastefnunni en hann er ekki sá eini. Það eru valkostir í stöðunni til lengri tíma litið. Það er umræða sem við verðum að taka og vinna með heimilum og atvinnulífinu, umræða sem snýr að því að vinna að losun hafta í skrefum og við verðum að fara í óháð því hvort við göngum inn í Evrópusambandið eður ei.
Virðulegi forseti. Klemman sem við stöndum frammi fyrir hefur löngum verið viðfangsefni stjórnunar og fræðimennsku á því sviði. Ég hef tilhneigingu til að horfa á málið út frá þeim sjónarhóli til að mynda mér staðfasta skoðun í málinu. Það er gjarnan þannig með mannskepnuna að við höfum tilhneigingu til að trúa því að við getum á ferilbundinn hátt safnað saman öllum tiltækum upplýsingum og komið þeim á framfæri þannig að á sama tímapunkti verði fullkominn skilningur á viðfangsefninu. Staðreyndin er sú að í svo veigamiklu og víðþátta máli eins og inngangan í ESB er sannarlega, þar sem hagsmunir stangast á, þá höfum við jafnvel ekki allar tiltækar upplýsingar og tími og tilfinningar eru stór þáttur í því og eins aðgengi hagsmunaaðila að upplýsingum. Þá spilar inn í matreiðsla upplýsinganna og, eins og ég kom inn á, tilfinningarnar gagnvart því til dæmis að fá að hafa eitthvað um málið að segja, eiga aðkomu að málinu.
Við þessu bregðumst við með mismunandi stjórnskipulagi og ýtrustu gerðir er auðvitað hægt að horfa á í fræðunum, að ýmist förum við í stjórnskipulag sem virkar frá botni og upp eða frá toppi og niður. Þetta hafa stjórnunarfræðin fengist við.
Mig langar að vitna í bandarískan fræðimann, Herbert Simon, sem á síðustu öld gagnrýndi þessar klassísku stjórnunarkenningar sem kveða svo á um að við horfum á ferilbundinn hátt á viðlíka viðfangsefni og þessi ákvarðanataka er. Hann lagði fram módel eða líkan sem hann kallaði skynsemislíkanið og benti á þær staðreyndir. Fyrir mér er þetta mál að hluta til á þeim stað.
Virðulegi forseti. Á grundvelli skýrslunnar get ég fundið sannfæringu minni farveg í því að taka ákvörðun um að hagsmunum okkar þjóðar er betur borgið að sinni utan Evrópusambandsins. Af stöðumati skýrslunnar á þróun viðræðnanna má lesa í skýrslunni að viðræðurnar gengu mun hægar en ætlað var, þrátt fyrir að við værum þegar búin að innleiða hluta af regluverkinu í gegnum EES-samninginn, og óljóst af hverju en að hluta til vegna þess að skilyrðin eru strangari en áður og samningsafstaða lá ekki fyrir í fjórum köflum, þar á meðal landbúnaðar- og sjávarútvegsköflunum.
Það er einu sinni þannig að þegar við erum með jafn viðamikið mál og þetta leitum við að einfaldri, ásættanlegri lausn og við flysjum utan af í gegnum upplýsingarnar sem við sitjum uppi með, vegum og metum einföldustu skiljanlegustu kosti, og það er annars vegar gjaldmiðillinn og hins vegar sjávarútvegur og landbúnaður. Svo reynum við á einfaldan hátt að velja á milli. Í mínum huga er umræðan stödd þar að hluta til þegar við erum að reyna að taka ákvörðun í þessu máli.
Það kemur skýrt fram á bls 37, með leyfi forseta, að ESB fer „eitt með óskiptar valdheimildir yfir varðveislu auðlinda í sameiginlegu fiskveiðistefnu sambandsins.“ Nær það „ekki aðeins til reglna um leyfilegan hámarksafla og tæknilegar verndarráðstafanir heldur einnig til reglna um markaðsmál og skiptingu kvóta milli aðildarríkjanna …“.
Mig langar að fara örlítið nánar í skýrsluna. Á bls. 138 kemur fram, með leyfi forseta:
„Hvað varðar Ísland er fátt sem bendir til að hægt sé að fá varanlegar undanþágur hvað varðar ýmsa þætti og má þar aðallega nefna fjögur atriði.
Ólíklegt er að hægt sé að sækja um varanlega undanþágu frá takmörkunum varðandi fjárfestingar útlendinga í sjávarútvegsfyrirtækjum. […]
Einnig má telja óvíst að hægt verði að setja skilyrði um hömlur á framsal aflaheimilda til annarra en Íslendinga eða íslenskra fyrirtækja.
Þá er ljóst að samningsumboð við lönd utan Evrópusambandsins, t.d. vegna veiða úr deili- og flökkustofnum, verður á hendi Evrópusambandsins en ekki einstakra ríkja. […]“
Virðulegi forseti. Það kemur skýrt fram í skýrslunni að Evrópusambandið gerir ávallt þá meginkröfu í aðildarviðræðum að umsóknarríkið gangi að öllu regluverki ESB óbreyttu, hvort sem um er að ræða bindandi eða óbindandi gerðir eða dóma dómstóls ESB.
Það er mín trú að hægt sé að ná árangri í efnahagsmálum án inngöngu í Evrópusambandið. Það er jafnframt mjög mikilvægt að efla allt alþjóðasamstarf og þar með talið samskiptin við Evrópu í gegnum EES-samninginn. Ég tel okkur best borgið fyrir utan Evrópusambandið, m.a. á grundvelli skýrslunnar. Ég tel það rétt af ríkisstjórninni, sem ekki vill ganga í Evrópusambandið, að fá það umboð frá Alþingi að klára það mál. Það er hreinlegast.
Um leið og ég finn sannfæringu minni farveg í því að hagsmunum okkar er þannig betur borgið utan sambandsins og að draga til baka umsóknaraðild er ég á hinn bóginn andvígur því að við séum að stilla þessu upp þannig að farið sé gegn stórum hluta þjóðarinnar í málinu eða eins og málinu er stillt upp, að verið sé að svíkja kjósendur eða atvinnulífið, verslun og þjónustu, iðnaðinn, stórútflutningsfyrirtæki, Evrópuþenkjandi almenning o.s.frv. Við erum að ræða ólík sjónarmið og í því felst hin pólitíska klemma. Ég get vissulega sýnt því skilning að þeir sem sjá hagsmuni í því að ganga í ESB vilji gefa þessu meiri tíma, draga hagsmunina skýrt fram og reyna að tryggja að lýðræðið hafi vinninginn í þessu máli og að hagsmunir okkar verði þannig tryggðir í sem mestri sátt við þjóðina.
Skýrslan er að sjálfsögðu gott innlegg til að reyna að klára þá umræðu. Það er það sem við gerum nú. Eftir stendur að mikilvægt er að stjórnvöld komi hreint fram og núllstilli umræðuna, aðildarferlið, dragi umsóknina til baka og gefi færi á því að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu að fara í þessa Evrópuvegferð þegar fullur pólitískur stuðningur er fyrir málinu. Þessu til áréttingar má benda á tilvitnun á vefmiðli í orð Maximilians Conrads, lektors við stjórnmálafræðideild á félagsvísindasviði Háskóla Íslands, með leyfi forseta:
„Hvað varðar líkur á endurnýjaðri aðildarumsókn að Evrópusambandinu, einhvern tímann síðar, segir Conrad mikilvægustu spurninguna hvort slík umsókn nyti stuðnings trausts þingmeirihluta (Forseti hringir.) og hversu staðráðin ríkisstjórnin væri í að ljúka því aðildarferli.“