aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Róberti Marshall fyrirspurn hans. Varðandi samstöðuna sem hv. þingmaður kom inn á átti ég við að ég áttaði mig ekki alveg á spurningunni, um hvað hún snerist og hverju hann sneri henni í upp í. Hvað varðar Samtök atvinnulífsins hef ég fullan skilning á því að menn ræði það í samhengi við gjaldmiðilinn. Það er fyrst og fremst sú umræða og það eru auðvitað hagsmunir sem okkur ber að vega og meta.
Það hefur komið fram í gjaldmiðilsskýrslu Seðlabankans að krónan verði gjaldmiðill okkar næstu 8–10 árin, en það eru vissulega aðrir möguleikar í stöðunni og við verðum að vinna með atvinnulífinu í því.